Í tilefni af 25 ára afmæli Verkmenntaskólans á dögunum komu góðir gestir færandi hendi. Blikksmiðjurnar á Akureyri gáfu skólanum saman hálfa milljón til tækjakaupa auk þess sem eigendur þeirra færðu skólanum jafnháa upphæð frá Félagi blikksmiðjueigenda og Samtökum iðnaðarins. Verður fénu varið til kaupa á búnaði í þágu náms í blikksmíði en tækjabúnaðurinn sem notaður hefur verið til þessa erorðinn gamall og úr sér genginn. Þá hefur Félag málmiðnaðarmanna jafnframt gefið skólanum 850 þúsund krónur til tækjakaupa á málmsmíðabrautinni. Þá fékk skólinn tíu milljónir króna á fjárlögum í þágu þessa verkefnis síðastliðinn vetur.
Málmsmiðabrautin var fyrst til þess að flytja í nýtt húsnæði skólans á Eyrarlandsholtinu og var brautin í upphafi búin gömlum vélum sem teknar voru með úr Iðnskólanum auk þess sem keyptur var notaður búnaður frá Danmörku. Ekki hefur náðst að endurnýja nema hluta hans á síðustu árum – en að sögn skólastjórnenda munu afmælisgjafirnar styrkja deildina mikið.



