Helgin var nokkuð róleg hjá lögreglunni á Akureyri. Tvö umferðarslys urðu í gær, bifhjól skall aftan á bíl á Hörgárbraut við Lónsá með þeim afleiðingum að tvennt sem var á hjólinu köstuðust af. Voru þau flutt á slysadeild en að sögn lögreglu voru áverkarnir ekki alvarlegir. Þá varð bílvelta í grennd við flugvöllinn í gærkvöld. Tvær stúlkur voru í bílnum en slösuðust ekki alvarlega. Nokkrir voru teknir fyrir hraðakstur.
Bíladagar hefjast um næstu helgi hér á Akureyri. Lögregla er við öllu búin og verður með auka mannskap til taks, en mikið var um ólæti og ölvun á Bíladögum síðasta árs. Fangageymslur lögreglu voru fullar alla helgina, og þurfti lögregla meðal annars að beita kylfum og varnarúða í átökum við fólk í miðbænum.




