Fjörður sigraði bikarkeppni ÍF í sundi

Skrifað 15. júní 2009 klukkan 14:16 | Ingimar Björn | Fréttir, Íþróttir | Senda á Facebook |
Félagsmenn Fjarðar fögnuðu sigrinum ákaft. Myndin er af heimasíðu félagsins.

Félagsmenn Fjarðar fögnuðu sigrinum ákaft. Myndin er af heimasíðu félagsins.

Íþróttafélagið Fjörður úr Hafnarfirði sigraði nokkuð örugglega í bikarkeppni Íþróttasambands fatlaðra sem haldin var í Sundlaug Akureyrar á laugardaginn. Mótshaldið var í umsjón Óðins og gekk vel í alla staði. Um 60 keppendur frá fjórum félögum voru skráðir til leiks. Matur og gisting voru í boði í Brekkuskóla og nýttu flestir sér það, og skapaðist skemmtileg stemning í skólanum. Í tengslum við mótið voru einnig opnar æfingabúðir undir stjórn landsliðsþjálfara ÍF.

Fjörður var handhafi bikarsins frá því í fyrra og ætlaði greinilega ekki að láta hann af hendi. Fjörður hlaut samtals 13.122 stig og Íþróttafélagið Ösp hlaut 8.745 stig og náði 2. sætinu örugglega. Baráttan var harðari um bronsið og að lokum munaði aðeins 60 stigum á Íþróttafélagi Fatlaðra í Reykjavík, sem hlaut 5.768 stig, og Sundfélaginu Óðni með 5.708 stig.

Jón Heiðar Jónsson, þjálfari hjá Óðni sagist vera sáttur eftir helgina en þetta var í fyrsta sinn sem Óðinn tók þátt í bikarkeppninni. „Við vorum að keyra þetta mikið á óvönum sundmönnum og var of mikið um ógildingar sem við þurfum að laga. En við stefnum ótrauð á verðlaunasæti að ári,“ sagði Jón Heiðar.

Þetta var í fyrsta skipti sem mótið er haldið utan höfuðborgarsvæðisins. „Ég hef ekki heyrt annað en ánægjuraddir eftir helgina enda lögðum við hjá Óðni metnað okkar í að halda mót sem sómi væri að,“ sagði Ása Birgisdóttir, formaður Óðins.

Lokað fyrir athugasemdir.