Leikfélag Akureyrar leitar að pilti í aðalhlutverk

Skrifað 14. júní 2009 klukkan 17:24 | | Fréttir, Menning | Senda á Facebook |
Samkomuhúsið, húsakynni Leikfélags Akureyrar. Mynd/Ingólfur Sigfússon.

Samkomuhúsið, húsakynni Leikfélags Akureyrar. Mynd/Ingólfur Sigfússon.

Leikfélag Akureyrar heldur opnar áheyrnarprufur á morgun, mánudaginn 15. júní á milli klukkan 14 og 16. Félagið leitar að strák á milli 12 og 15 ára sem hefur áhuga á að taka að sér stórt og krefjandi hlutverk næsta vetur. Viðkomandi þarf ekki að syngja.

Leikritið sem um ræðir verður frumsýnt um miðjan október, en æfingar hefjast í ágúst. Tekið verður á móti áhugasömum í Samkomuhúsinu á fyrrgreindum tíma.

Leikhússtjóri er um þessar mundir að setja saman næsta leikár, velja verkefni og ráða listamenn til starfa. Leiklistarskóli LA heldur áfram næsta vetur og stefnt er að því að bjóða upp á framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem voru á námskeiðunum nú í vor. Þá má geta þess að sýning LA, Lápur, Skrápur og jólaskapið er tilnefnd til Grímuverðlauna fyrir bestu barnasýningu, en verðlaunin verða afhent í Borgarleikhúsinu á þriðjudag.

Athugaemdir