Fylkir og Matthea sigruðu fyrstu umferð Bleika Toppbikarsins

Skrifað 13. júní 2009 klukkan 23:27 | | Fréttir, Íþróttir | Senda á Facebook |
Hjón urðu í fyrsta sæti en mæðgur í öðru sæti. Mynd/ÖHÖ

Hjón urðu í fyrsta sæti en mæðgur í öðru sæti. Mynd/ÖHÖ

Fyrsta umferð Bleika Toppbikarsins var haldin á Jaðarsvelli við Akureyri í gærkvöldi og var spilað í blíðskaparveðri og sól. Fyrirkomulagið var Texas Scramble punktakeppni með forgjöf og fékk sigurliðið þátttökurétt á lokamótinu sem haldið verður í Borgarnesi síðar í sumar. Hjónin Fylkir Þór Guðmundsson og Matthea Sigurðardóttir urðu hlutskörpust að þessu sinni en þau spiluðu frábært golf og fengu 46 punkta. Í öðru sæti urðu mæðgurnar Guðlaug María  og Petrea Jónasdóttir með 43 punkta. Í þriðja sæti voru Heimir Örn Árnason og Hjalti Þór Pálmason með 41 punkt og í fjórða og síðasta verðlaunasætinu voru Árný Lilja og Rafn Ingi með 39 punkta.

Bleiki Toppbikarinn er fjáröflunarverkefni Krabbameinsfélagsins og Vífilfells í samvinnu við GSÍ. Allur ágóði af verkefninu verður nýttur til eflingar leitarstarfs á vegum Krabbameinsfélagsins.

Í ár var kynnt sú nýjung að öll lið fengu eina bleika kúlu og áttu að slá til skiptis og keppt var um hver kæmi kúlunni lengst án þess að týna henni. Sigurvegarar í þessari skemmtilegu keppni urðu þau sömu og unnu mótið en það voru þau Fylkir Þór Guðmundsson og Matthea Sigurðardóttir.

Næst holu á 4. braut varð Margrét Einarsdóttir en hún var 2.19 metra frá holu. Á 6. holu þvar Kristín Walker næst en hún var 3.90 metra frá holu. Á 11. holu var Kristín Björnsdóttir næst holu en hún var 5,33 metra frá holu. Á 18. holu var Heimir Örn Árnason næst holu en hann var 3,10 metra frá holu. Í lokin var dregið úr skorkortum og var vinningurinn ekki af verri endandum, en það var þátttökuréttur á lokamótin í Borganesi eins og sigurvegararnir hlutu. Þeir heppnu voru Hreiðar Gíslason og Guðmundur Finnsson.

Hér má sjá nokkrar myndir frá mótinu:

Athugaemdir