Háskólinn á Akureyri brautskráði í dag 289 kandídata á Háskólahátíð sem haldin var í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag. Flestir brautskráður af félags- og hugvísindadeild, eða 156. Þá brautskráðust 69 nemendur af viðskipta- og raunvísindadeild, og 64 af heilbrigðisdeild. Í fyrsta sinn voru svo brautskráðir fimm kandídatar með MS gráðu í viðskiptafræði. Konur eru í miklum meirihluta hópsins, eða 226 á móti 63 körlum. Forseti Íslands var viðstaddur brautskráningu í ár og afhenti styrki úr Háskólasjóði KEA í móttöku í Háskólanum á Akureyri að lokinni brautskráningu.
Brautskráningin í dag var síðasta brautskráning Þorsteins Gunnarssonar, rektors, en hann lætur af störfum um næstu mánaðarmót. Þorsteinn sagðist í ræðu sinni telja þrótt og uppbyggingu einkenna starf skólans þrátt fyrir erfiða tíma. Þá varaði rektor við þeim hugmyndum sem uppi eru um fækkun háskóla, og að aðeins yrðu tveir háskólar á landinu sem hefðu höfuðstöðvar sínar í Reykjavík: “Með því yrði öll sjálfstæð háskólastarfsemi á landsbyggðinni lögð af en komið yrði á fót óskilgreindum útibúum sem ættu allt undir miðstýrðu valdi höfuðstöðvanna í Reykjavík. Ég dreg í efa ágæti slíkrar útibúastarfsemi á landsbyggðinni.” Þorsteinn sagðist þó vel getað hugsað sér að háskólum yrði fækkað, þannig að tveir væru með höfuðstöðvar í Reykjavík, en einn á Akureyri.
Ræða Þorsteins í heild sinni verður aðgengileg hér á vefnum fljótlega.




