Alls bárust 67 ábendingar við deiliskipulagstillögu af miðbæ Akureyrar, en tillagan var kynnt í febrúar og mars síðastliðnum. Markmið kynningar var að fá viðhorf bæjarbúa við þeim hugmyndum sem fyrir lágu og viðbrögð og nýjar hugmyndir innan þeirra meginlína sem lagðar höfðu verið. Margskiptar skoðanir eru um nýjan miðbæ, til eru þeir sem finnst of langt gengið, á meðan aðrir fagna framsýnum og djörfum hugmyndum.
Fyrirhugað síki í miðbænum virðist vera mjög umdeilt. Í ábendingum kemur fram hræðsla um léleg vatnsskipti, síkið verði hættulegt, kuldi eigi greiðari leið frá sjónum og að hugmyndin sé hreinlega “óakureyrísk”. Aðrir telja þetta þó einn sterkasta kost tillaganna. Þá koma fram áhyggjur af því að tveggja akreina Glerárgata anni ekki umferð, en samkvæmt tillögunum getur orðið 42 sekúndna töf á háannatíma.
Á nokkrum stöðum kemur fram ósk um læk niður Skátagilið og í fyrirhugað síki. Í minnisblaði um ábendingarnar kemur fram að bærinn ætli að skoða það mál sérstaklega. Akureyrarbær fagnar þeim ábendingum sem komu fram og telur þær hjálpa til við að þróa tillöguna frekar og rökstyðja hana.
Minnisblað um ábendingarnar má nálgast hér.




