Lína sýnir í DaLí

Skrifað 12. júní 2009 klukkan 16:31 | Ingimar Björn | Fréttir, Menning | Senda á Facebook |
Lína á vinnustofunni í DaLí galleríi. Mynd/Örlygur Hnefill

Lína á vinnustofunni í DaLí galleríi. Mynd/Örlygur Hnefill

Sigurlín M. Grétarsdóttir ( Lína ) opnar sýningu 13.júní 2009 klukkan 14 í DaLí Gallery, Brekkugötu 9 á Akureyri.
Sýningin ber yfirskriftina ” Tilbrigði – Variations ”

Lína notar blandaða tækni í verkunum, aðferð sem hún hefur verið að þróa í rúm 2 ár. Í verkunum á sýningunni í DaLí Gallery notar hún acryl, lakk, pappír, hrosshár og fleira.

Sigurlín M.Grétarsdóttir ( Lína ) stundaði nám við Iðnskólann í Hafnarfirði í 3 ár, á hönnunarbraut og útskrifaðist sem tækniteiknari. Hún útskrifaðist frá Myndlistarskólanum á Akureyri árið 2007 eftir fjögurra ára nám þar. Þann 13.júní, sama dag og hún opnar þessa sýningu, útskrifast Lína frá Háskólanum á Akureyri úr kennsluréttindanámi.

Þessi sýning er 7. einkasýning hennar en hún hefur tekið þátt í nokkrum af
samsýningum.

Lokað fyrir athugasemdir.