Nú um helgina heldur Sundfélagið Óðinn á Akureyri Bikarkeppni ÍF í sundi í samstarfi við Íþróttasamband fatlaðra. Þetta er í fyrsta sinn sem mótið er haldið utan höfuðborgarsvæðisins og jafnframt í fyrsta sinn sem Óðinn heldur mót á landsvísu fyrir fatlaða sundmenn.
Óðinn hefur þá sérstöðu meðal íþróttafélaga að innan raða félagsins æfa og keppa bæði fatlaðir og ófatlaðir.Á mótið eru skráðir rúmlega 40 keppendur frá 4 félögum. Bikarkeppnin sjálf er á laugardaginn og hefst keppni kl. 11 í Sundlaug Akureyrar. Þá verða einnig opnar æfingabúðir í tengslum við mótið á föstudag og sunnudag í Sundlaug Akureyrar undir stjórn landsliðsþjálfara Íþróttasambands fatlaðra.





