Stefán B. Sigurðsson skipaður rektor Háskólans

Skrifað 11. júní 2009 klukkan 18:48 | | Fréttir | Senda á Facebook |
Dr. Stefán B. Sigurðsson, prófessor og nýskipaður rektor Háskólans á Akureyri.

Dr. Stefán B. Sigurðsson, prófessor og nýskipaður rektor Háskólans á Akureyri.

Stefán B. Sigurðsson hefur verið skipaður í embætti rektors Háskólans á Akureyri til fimm ára. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra skipaði Stefán í starfið en það er gert að fenginni tilnefningu háskólaráðs HA. Háskólaráð mat Stefán hæfastan umsækjenda, en alls bárust sex umsóknir um starf rektors.

Stefán hefur störf þann 1. júlí næstkomandi, en hefur verið forseti læknadeildar Háskóla Íslands frá árinu 2003.

Athugaemdir