Hressir krakkar í starfskynningu á Akureyri.net

Skrifað 10. júní 2009 klukkan 13:28 | | Fréttir | Senda á Facebook |
Fjölmiðlavaktin að vinna að frétt við Laxdalshús í morgun. Mynd/ÖHÖ

Fjölmiðlavaktin að vinna að frétt við Laxdalshús í morgun. Mynd/ÖHÖ

Fimm hressir krakkar hafa verið í starfskynningu á Akureyri.net í morgun. Það eru þau Styrmir Elí Ingólfsson, Grettir Páll Einarsson, Torfi Franklín Hjaltason, Ásdís Björk Gunnarsdóttir og Lína María Arnarsdóttir en starfskynningin er hluti af námskeiðinu “Ferðalag um framandi heima” sem Gilfélagið stendur fyrir í sumar. Fyrsta verkefni dagsins var ritstjórnarfundur þar sem ákveðið var hvað gert yrði í dag og eftir það var haldið yfir á útvarpsstöðina Voice sem fagnaði afmæli sinu í gær. Þá ræddu krakkarnir við þrjá Akureyringa sem nýverið stofnuðu vefsíðuna Vísindin.is og er hópurinn nú á Gásum. Afrakstur vinnunnar má sjá á Akureyri.net næstu daga.

[podcast format="video"]/video/aknet_voicekrakkar.flv[/podcast]

Athugaemdir