Akureyri.net auglýsir eftir íþróttafréttamanni

Skrifað 10. júní 2009 klukkan 16:52 | | Fréttir, Íþróttir | Senda á Facebook |
Landsmót UMFÍ fer fram á Akureyri í sumar. Mynd/ÖHÖ

Landsmót UMFÍ fer fram á Akureyri í sumar. Mynd/ÖHÖ

Vegna gríðarlegrar aukningar heimsókna á vefinn undanfarnar vikur auglýsir Akureyri.net nú eftir íþróttafréttamanni til að skrifa fréttir af leikjum Akureyskra liða í sumar og fjalla um íþróttaviðburði hér í bænum. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Örlyg Hnefil Örlygsson ritstjóra vefsins í síma 862 1818 eða sent póst á netfangið hnefill@akureyri.net. Það er stefna okkar að hér verði öflug umfjöllun um íþróttir og birtar bæði skrifaðar fréttir og fréttir í vefsjónvarpi auk mynda frá leikjum og viðburðum. Þá er stefnt að fjalla ítarlega um landsmót UMFÍ sem fer fram hér í bænum nú í sumar.

Athugaemdir