Eldri kona lést í eldsvoða í sumarhúsi á Kljáströnd, skammt frá Grenivík í morgun. Kallað var eftir aðstoð slökkviliðs um klukkan 9 í morgun og komu bílar bæði frá Grenivík og Akureyri á vettvang, en mikill eldur var í húsinu þegar að var komið. Eiginmaður konunnar var einnig í húsinu og var hann fluttur til aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins. Eldsupptök eru ókunn en lögreglan á Akureyri vinnur að rannsókn málsins. Ekki er unnt að greina frá nafni hinnar látnu að svo stöddu.





