Slökkviliðsmönnum í eiturefnabúningum hefur tekist að stöðva lekann um borð í Frosta, sem liggur við bryggju á Grenivík, en tilkynnt var um ammóníakleka um borð á sjöunda tímanum í kvöld. Lekinn var nokkuð alvarlegur, en að sögn lögreglu á vettvangi var bæjarbúum aldrei hætta búin. Þá var maður sem var um borð er lekans varð vart heill á húfi.
Björgunarsveit og lögregla fóru á milli húsa í bænum og athuguðu líðan fólks, en enginn kenndi sér meins eða óþæginda. Einhverjir hestar voru færðir til, og íbúum var bent á að kynda hús sín til að mynda yfirþrýsting. Nú er unnið að því að fella ammoníakið með vatnsúða. Um það bil eitt og hálft tonn af ammoníaki var í kerfi skipsins, og er efnið mjög eitrað, svo að verr hefði getað farið. Að sögn lögreglu á vettvangi hefði þó alltaf mátt sigla skipinu í burtu, hefði bæjarbúum verið hætta búin.









