Fréttavefurinn Akureyri.net hefur opnað starfatorg fyrir Akureyringa og nærsveitafólk í atvinnuleit. Á starfatorginu eru birtar auglýsingar frá atvinnurekendum um laus störf og einnig auglýsingar frá fólki í atvinnuleit þar sem óskað er eftir vinnu. Auglýsingar á starfatorginu eru ókeypis og er tekið við þeim á netfanginu atvinna@akureyri.net en þær eru uppfærðar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Þá fara starfsmenn starfatorgs einnig yfir auglýsingar í fjölmiðlum um laus störf og færa inn á síðuna.
“Þetta er okkar framlag til að efla samfélagið sem er okkar vettvangur og vinnusvæði,” segir Örlygur Hnefill Örlygsson, ritstjóri Akureyri.net. Hann segist vonast til að atvinnurekendur verði duglegir að nýta sér þessa þjónustu og vonandi verði þetta framtak til þess að auðvelda fólki atvinnuleitina.




