Eðlilegt að annar háskólinn sé utan höfuðborgarsvæðisins

Skrifað 05. júní 2009 klukkan 11:47 | | Fréttir, Stjórnmál | Senda á Facebook |
Háskólinn á Akureyri. Mynd/Bjarki Sigursveinsson.

Háskólinn á Akureyri. Mynd/Bjarki Sigursveinsson.

Á fundi sínum í gær, 4. júní, lýsti Bæjarráð Akureyrar sig mótfallið hugmyndum um að Háskólinn á Akureyri verði gerður að útibúi frá háskóla með höfuðstöðvar í Reykjavík. Mikil mótstaða hefur verið við þessar hugmyndir á Akureyri og sagði Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, hugmyndirnar aðför að háskólamenntun á landsbyggðinni í samtali við Akureyri.net fyrir skemmstu. Bæjarráð telur hugmyndirnar ógna hinu mikilvæga hlutverki og sérstöðu skólans, og telur eðlilegt að ef aðeins yrðu tveir háskólar í landinu yrði annar þeirra staðsettur utan höfuðborgarsvæðisins.

Í bókun bæjarráðs segir: “Bæjarráð Akureyrar fjallaði um málefni  Háskólans á Akureyri og  lýsir sig  mótfallið hugmyndum um að Háskólinn á Akureyri verði gerður að útibúi frá háskóla með höfuðstöðvar í Reykjavík. Frá árinu 1987 hefur HA  verið leiðandi í uppbyggingu háskólamenntunar á landsbyggðinni og  skilað miklum fjölda háskólamenntaðs fólks  sem gegnir   mikilvægu hlutverki við uppbyggingu atvinnulífs um allt land.  Náið samstarf háskólans og samfélagsins  hefur verið eitt aðalsmerki HA  og sjálfstæði háskólans hefur gert honum kleift að bregðast fljótt við nýjum áskorunum, verkefnum og hugmyndum og tengja rannsóknastarfið þeim málum sem brenna á nærsamfélaginu.  Háskólinn á Akureyri er jafnframt leiðandi í uppbyggingu fjarnáms um allt land og hefur veitt miklum fjölda fólks tækifæri til að stunda háskólanám án tillits til búsetu og áform eru um að efla það enn frekar. HA hefur gengið í gengum mikla endurskipulagningu á sínum rekstri og þar hefur náðst að skapa hagkvæma rekstrareiningu sem rekin hefur verið innan ramma fjárlaga síðastliðin ár. Með auknu samstarfi við aðra háskóla geta ýmsir möguleikar skapast á enn frekari hagræðingu í rekstri skólans. Með því að leggja af yfirstjórn Háskólans á Akureyri og stýra skólanum frá miðlægri stofnun í Reykjavík væri  hinu  mikilvæga hlutverki og sérstöðu háskólans ógnað og á það getur bæjarráð ekki fallist. Ef aðeins á að gera ráð fyrir 2 háskólum í landinu er eðlilegt að annar sé utan höfuðborgarsvæðisins.”

Lokað fyrir athugasemdir.