Annasöm helgi hjá lögreglunni

Skrifað 31. maí 2009 klukkan 19:50 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Mikið hefur verið að gera hjá lögreglunni þessa fyrstu ferðahelgi sumarsins

Mikið hefur verið að gera hjá lögreglunni þessa fyrstu ferðahelgi sumarsins

Í gærkvöldi varð umferðarslys á Hamarstíg við Engimýri, þar skullu tvær bifreiðar saman sem báður urðu óökufærar á eftir. Tveir aðilar voru fluttir á sjúkrahús úr árekstri þessum en meiðsl þeirra voru ekki talin mjög alvarleg. Í nótt var svo kona flutt á sjúkrahús eftir að maður hafði barið hana í höfuðið með glasi á einum skemmtistaða bæjarins en hún var talsvert skorin í andliti. Vitað er hver árásarmaðurinn er og er unnið að rannsókn málsins. Þá hafa tveir ökumenn verið teknir fyrir grun um ölvun við akstur nú um helgina.

Lokað fyrir athugasemdir.