Keyrðu lengra en til Suðurheimskautslandsins fyrir listina

Skrifað 30. maí 2009 klukkan 11:49 | | Fréttir, Menning | Senda á Facebook |
Nemendur Arnar Inga sýna afrakstur vetrarins um helgina. Mynd/Örlygur Hnefill

Nemendur Arnar Inga sýna afrakstur vetrarins um helgina. Mynd/Örlygur Hnefill

“Sýningin núna um helgina er tileinkuð þrem ungum stúlkum sem sýna í dag og fjölskyldum þeirra, en þær hafa á undanförnum árum keyrt frá Laugum til Akureyrar og hafa nú samanlagt keyrt lengra en til Suðurheimskautslandsins,” segir myndlistarmaðurinn Örn Ingi, en hópur nemenda hans opnar í dag síðari vorsýningu myndlistaskóla hans.

Örn Ingi hefur kennt myndlist í yfir 20 ár og verið með myndlistarskóla hér á Akureyri í 15 ár. Í vetur voru um 50 nemendur við skólann og er þetta seinni sýningin af tveimur á þessu vormisseri. Sýningin er í vinnustofu hans í Klettagerði 6 og er opin bæði á laugardag og sunnudag frá 2 til 6. Þar gefur að líta fjölbreyttar myndir en einnig verða listræn atriði sýnd við opnunina í dag.

Athugaemdir