
Arngrímur mun ekki valsa um háloftin í dag, en við fylgjumst með síðar í sumar. Myndin er tekin af heimasíðu hátíðarinnar.
Setningarathöfn AIM festival var frestað í gær vegna veðurs og átti að fara fram í dag klukkan 15.00. Af því verður þó ekki. Flugvalsi Arngríms Jóhannsonar verður frestað þar til síðar í sumar, þegar skyggni og aðstæður eru betri.
Það breytir þó ekki því að AIM hátíðin er í fullum gangi. Í kvöld verða sem áður jómfrúartónleikar Stórsveitar Akureyrar, undir stjórn Alberto Carmona. Tónleikarnir verða á Græna hattinum, hefjast klukkan 21.00 og kostar 2.500 krónur inn.
Verða þetta einu tónleikar Stórsveitarinnar þetta sumar því sumarleyfi eru að hefjast og meðlimir sveitarinnar munu tvístrast um allar jarðir.
Stórsveit Akureyrar leikur að allskyns djass- og latíndjasslög, hvort sem þau hafa verið samin fyrir stórsveit eða útsett. Meðal laga á efnisskrá jómfrúartónleikanna eru; Eat that Chicken (Charles Mingus), Haitian Fight Song (Charles Mingus), A Night in Tunisia (Dizzy Gillesbie), Tijuana Gift Shop (Charles Mingus), To Brenda with Love (Paquito D’Rivera) og fleiri.


