Rétt fyrir klukkan sjö í kvöld var slökkviliðið á Akureyri kallað út að kjötvinnslu Norðlenska við Grímseyjargötu. Eldboð barst stjórnstöð Öryggismiðstöðvar og þegar vaktmaður kom á staðinn var talsverður reykur í miðrými hússins.
Reykkafarar voru sendir inn í húsið og fundu þeir fljótlega upptök eldsins en sagi úr reykkofni hafði verið settur í plastbakka og hafði eldur læst sig í bakkann. Slökkvistarf tók skamma stund en húsið var reykræst á eftir. Litlar skemmdir urðu á húsnæðinu.



