Kórastefna við Mývatn haldin í sjöunda sinn

Skrifað 28. maí 2009 klukkan 16:16 | | Fréttir, Menning, Tónlist | Senda á Facebook |
Myndin er frá tónleikum kórastefnu síðasta árs, í hvelfingu Laxárvirkjunnar. Mynd/korastefna.is

Myndin er frá tónleikum kórastefnu síðasta árs, í hvelfingu Laxárvirkjunnar. Mynd/korastefna.is

Dagana 4. til 7. júní verður haldin í sjöunda sinn kórastefna við Mývatn. Það er Margrét Bóasdóttir sem er listrænn stjórnandi, en stefnan er í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Boðið verður upp á þrenna tónleika, á Hallarflöt í Dimmuborgum, í félagsheimilinu Skjólbrekku og hátíðartónleika í íþróttahúsinu í Reykjahlíð, þar sem flutt verður aðalverkefni hátíðarinnar, Messa í As-dúr eftir Franz Schubert.

Í ár eru þáttakendur um 350 talsins, í tíu kórum og hljómsveit. Kórarnir koma víðsvegar að, en þeir sem lengst eru að komnir eru líklega meðlimir kammerskórs tónlistarháskólans í Bremen, en sá kór hefur unnið til verðlauna í Þýskalandi fyrir frammistöðu sína.

Það er enginn svikinn af því að eyða sumarhelgi við Mývatn. “Allir þeir sem einu sinni hafa verið þarna, þeir vilja koma aftur” segir Margrét Bóasdóttir. Hún segir hátíðin vaxa og dafna með árunum, og furðar sig á því að enn sé þetta eina kórastefna landsins. “Þetta er eini vettvangurinn þar sem kórar geta komið saman, hlustað á hvern annan og tekið þátt í einu glæsilegu verkefni sem kórarnir einir hefðu kannski ekki haft burði til að framkvæma.”

Fyrstu tónleikarnir verða haldnir fimmtudagskvöldið 4. júní klukkan 20.30 í félagsheimilinu Skjólbrekku, og kostar 1500 kr. inn á þá. Aðrir tónleikarnir verða í Dimmuborgum á föstudagskvöldi á sama tíma, og er þá aðgangur ókeypis. Hátíðartónleikarnir á sunnudaginn verða svo í íþróttahúsinu í Reykjahlíð klukkan 15.00, og er aðgangseyrir á þá 3500 krónur. Nánari upplýsingar má fá á vefsíðu kórastefnunnar, korastefna.is.

Lokað fyrir athugasemdir.