Jómfrúartónleikar Stórsveitar Akureyrar um helgina

Skrifað 28. maí 2009 klukkan 15:31 | | Fréttir, Menning, Tónlist | Senda á Facebook |
Tónleikar sveitarinnar verða á Græna hattinum á laugardagskvöld

Tónleikar sveitarinnar verða á Græna hattinum á laugardagskvöld

Nú um helgina heldur Stórsveit Akureyrar jómfrúartónleika sína á Græna Hattinum. Verða þetta einu tónleikar Stórsveitarinnar þetta sumar því sumarleyfi eru að hefjast og meðlimir sveitarinnar munu tvístrast um allar jarðir. Stórsveit Akureyrar var stofnuð nú á vormánuðum af tónlistarmönnum á Akureyri, Hjörleifi Jónssyni skólastjóra og Baldvini Esra hjá Kimi Records. Stjórnandi og aðalsprauta sveitarinnar er hinn stórkostlegi Alberto Carmona, stórsveitarundrabarn og saxófónleikari. Alberto flutti til Akureyrar síðasta haust til að kenna við tónlistarskólann og vildi ólmur nýta sér langa reynslu sína af svórsveitarstússi. Því var ekkert annað í stöðunni en að drífa það af að stofna bandið að áeggjan Hjörleifs Arnar Jónssonar, skólastjóra TÓNAK, og Baldvin Esra, framkvæmdastjóra Kima. Í haust verður aftur hafist handa við tónleikahald og eru áætlanir uppi um reglulega stórsveitarviðburði, Akureyringum og nágrönnum og gestum bæjarfélagsins, vonandi til mikillar ánægju og yndisauka. Tónleikarnir verða á laugardaginn og hefjast stundvíslega klukkan 21.

Athugaemdir