Facebook notendur vilja grænt Ráðhústorg

Skrifað 26. maí 2009 klukkan 11:53 | | Fréttir, VefTV | Senda á Facebook |
Þessi mynd var tekin rétt eftir að torgið var þökulagt síðasta sumar. Myndin er tekin af síðu hópsins.

Þessi mynd var tekin rétt eftir að torgið var þökulagt síðasta sumar. Myndin er tekin af síðu hópsins.

Ört vaxandi fjöldi notenda á Facebook samskiptavefnum hefur nú gengið til liðs við hóp á síðunni sem skorar á bæjaryfirvöld, eða bara hvern sem er, að þökuleggja Ráðhústorgið á ný í sumar. Hópurinn telur þegar þetta er skrifað rúmlega 3100 manns, eða tæplega nítján prósent bæjarbúa.

Hermann Jón Tómasson, formaður bæjarráðs, segir bæjaryfirvöld hafa tekið vel í þökulagninguna í fyrra og þau séu að skoða málið með jákvæðu hugarfari. Þá vill Sigurður Guðmundsson, verslunareigandi sem bar ábyrgð á verkinu síðasta sumar, sjá bæjarbúa taka höndum saman og grænka torgið í sameiginlegu átaki.

Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstýra er sammála þessu, en hún skrifar á “vegg” hópsins í gærkvöld: ” Það er best að gera þetta í lok júní/ byrjun júlí og gaman væri ef að við íbúarnir tækjum okkur saman einn laugardag og sæjum um framkvæmdina. Bærinn kæmi með þökur og sumarblóm en við gerðum þetta sjálf.” Það er því von á grænu torgi í sumar, í krafti samvinnu bæjarbúa.

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Sjá síðu hópsins: http://www.facebook.com/group.php?gid=102469246296

Athugaemdir