Háskólaráð Háskólans á Akureyri telur Dr. Stefán B. Sigurðsson, prófessor og forseta læknadeildar Háskóla Íslands, fremstan meðal hæfra umsækjenda um starf rektors Háskólans á Akureyri. Alls bárust sex umsóknir um starfið, en einni var vísað frá þar sem hún uppfyllti ekki skilyrði starfsins.
Sérstök nefnd skipuð af fráfarandi rektor skólans mat hæfi umsækjenda, og taldi Stefán hæfastann.
Háskólaráð mun óska eftir umsögn háskólafundar á þeirri fyrirætlan ráðsins að tilnefna Sigurð. Fundurinn verður haldinn í húsnæði háskólans þann 26.maí næstkomandi.
Gert er ráð fyrir því að nýr rektor hefji störf 1. júlí.
Aðrir umsækjendur um starfið voru:
Dr. Bjarki Jóhannesson, sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðar
Dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri
Dr. Ingi Rúnar Eðvarðsson, prófessor í stjórnun við Háskólann á Akureyri
Dr. Ívar Jónsson, forstöðumaður þjóðdeildar Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns
Dr. Stefán B. Sigurðsson, prófessor og forseti læknadeildar Háskóla Íslands
Zhanna Suprun, verkfræðingur.
Umsókn Zhanna Suprun var vísað frá þar sem hún uppfyllti ekki menntunarskilyrði.



