Opna tvær sýningar á tveim vikum

Skrifað 18. maí 2009 klukkan 17:59 | | Fréttir | Senda á Facebook |
Brynhildur Þórarinsdóttir, Rósa Kristín Júlíusdóttir og Karl Guðmundsson hlutu hvatningarverðlaun CP-félagsins á föstudaginn. Mynd/HA

Brynhildur, Rósa Kristín og Karl hlutu hvatningarverðlaun CP-félagsins á föstudaginn. Mynd/HA

Listamennirnir Rósa Kristín Júlíusdóttir og Karl Guðmundsson hlutu á föstudaginn hvatningarverðlaun CP-félagsins á Íslandi, ásamt Brynhildi Þórarinsdóttur, lektor við Háskólann á Akureyri. CP stendur fyrir Cerebral Palsy sem er algengasta hreyfihömlun meðal einstaklinga.

CP-félagið hefur árlega veitt hvatningarverðlaun til þeirra sem þykja góðar fyrirmyndir fyrir félagsmenn, en verðlaunin voru í ár veitt samhliða opnun sýningar Rósu Kristínar og Karls, Himintjöld og dansandi línur, en hún stendur nú yfir á bókasafni Háskólans á Akureyri. Þetta er önnur sýningin sem Karl og Rósa opna á tveim vikum, en þriðjudaginn 5. maí s.l. opnaði Karl sýninguna KALLI25 í Ráðhúsinu á Akureyri.

Karl og Rósa hafa unnið saman að myndlist í mörg ár. Samstarfið var lengi vel samspil nemenda og kennara, en hefur þróast áfram yfir í samvinnu tveggja vina, félaga í listinni. Karl hefur málað efni byggt á eigin hugmyndum og Rósa unnið áfram með það á mismunandi vegu, en að þessu sinni málaði Rósa efnin fyrst og Karl tók við og vann með þau áfram.

Sýningin stendur til 22. maí, og er opin frá 8-16 alla virka daga.

Athugaemdir