Sögulegur mannfjöldi á sviði Samkomuhússins um helgina

Skrifað 18. maí 2009 klukkan 03:57 | | Fréttir, VefTV | Senda á Facebook |
Rúmlega fjögurhundruð nemendur komu fram á sviði Samkomuhússins um helgina. Mynd/Örlygur Hnefill

Rúmlega 400 nemendur komu fram á sviði Samkomuhússins um helgina. Mynd/Örlygur Hnefill

Nokkuð líklegt má telja að fjöldamet hafi verið slegin í Samkomuhúsinu á Akureyri um helgina þegar vorsýningar Point dans stúdíós fóru fram. Alls komu rúmlega 400 nemendur fram á sviði gamla leikhússins og þá voru þéttskipaðir bekkir á öllum sex sýningum helgarinnar og raunar var aðsóknin það mikil að margir máttu standa.

Sýningin var öll hin glæsilegasta og góður vitnisburður þess starfs sem unnið hefur verið í dansskólanum í vetur. Sigyn Blöndal, stofnandi skólans segir undirbúning sýningarinnar hafa staðið frá því í desember á síðasta ári en nemendurnir lögðu undir sig leikhúsið um síðustu helgi og voru stífar æfingar alla vikuna. Myndir frá fyrri sýningardeginum eru komnar á Akureyri.net og eru myndir frá seinni sýningardeginum væntanlegar hingað í kvöld.

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

.
Myndir frá fyrri sýningardegi:

Myndir frá seinni sýningardegi:

Athugaemdir