Þrír norðlendingar voru í íslenska hópnum sem komst áfram í úrslit Eurovision söngvakeppninnar í Moskvu í kvöld. Það eru þau Erna Hrönn Ólafsdóttir frá Akureyri og Friðrik Ómar Hjörleifsson frá Dalvík, en hann fæddist reyndar hér á Akureyri. Þá var þriðji bakraddasöngvarinn, Hera Björk Þórhallsdóttir, búsett á Akureyri um skeið og stundaði nám við Háskólann á Akureyri. Þau þrjú syngja bakraddir með Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur í laginu Is it true? og stíga næst á sviðið á laugardag, en þá fara úrslitin fram. Það má því með sanni segja að norðlendingar hafi átt stóran þátt í góðu gengi lands og þjóðar í Moskvu í kvöld. Þetta er annað árið í röð sem Ísland kemst upp úr undakeppninni og var spennan mikil, enda Ísland síðasta landið sem var tilkynnt í kvöld. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu Sjónvarpsins og hefst klukkan 19:00.



