Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hófst núna klukkan tólf á hádegi í sal bæjarstjórnar Akureyrar í Ráðhúsinu. Að loknum fundi verður blaðamannafundur og verður hann sýndur í heild sinni á Akureyri.net síðar í dag.
Ráðherrar ríkisstjórnarinna voru á ferð um bæinn í morgun og duttu nokkrir nemendur úr 8. bekk Lundarskóla í lukkupottinn, en þeir eru að vinna að fjölmiðlaverkefni á Smiðjudegi skólans. Það var ekki leiðinlegt fyrir þá að ná sjálfum fjármálaráðherra landsins, Steingrími J. Sigfússyni í viðtal og voru nemendurnir kampakátir eftir viðtalið.




