Fyrir skemmstu héldu námsmannafyrirtækin Losti og Skellur til Reykjavíkur að keppa við önnur námsmannafyrirtæki um besta fyrirtækið 2009. Keppnin var í ár haldin í húsnæði Háskólans í Reykjavík og í stuttu máli, þá vann fyrirtækið Skellur tvenn verðlaun; besta viðskiptaáætlunin og svo aðalverðlaunin, besta fyrirtækið 2009. Skellur framleiddi nú í vetur Gaurinn sem er nokkurskonar klósettsetu dempari og má með sanni segja að hann hafi slegið í gegn. Losti framleiddi gosdrykkinn Losta sem líka hefur vakið verðskuldaða athygli.
Stjórnendur Skells munu nú í apríllok og í maíbyrjun fara í þann fasa að koma raunverulegu fyrirtæki á koppinn, sem og að undirbúa sig að fara til Hollands í sumar þar sem þau munu keppa í Evrópukeppni ungra frumkvöðla. Vefur VMA greindi frá.




