Íslenski hópurinn í Eurovision æfði á stóra sviðinu í Moskvu í morgun og gekk æfingin vel. Einn Akureyringur er í hópnum, en það er bakraddasöngkonan Erna Hrönn Ólafsdóttir.
Erna er fædd á Akureyri árið 1981 og sigraði meðal annars söngkeppni Menntaskólans á Akureyri fyrir nokkrum árum. Hún hefur verið áberandi í tónlistarlífinu hérlendis undanfarin ár og var um tíma söngkona hljómsveitarinnar Bermuda.
Hægt er að sjá myndband frá fyrstu æfingunni hér.





