Þrjúhundruð strikuðu yfir Kristján Þór

Skrifað 02. maí 2009 klukkan 18:07 | | Fréttir, Stjórnmál | Senda á Facebook |
Kristján Þór Júlíusson oddviti Sjálfstæðismanna

Kristján Þór Júlíusson oddviti Sjálfstæðismanna.

Talsvert var um útstrikanir í Norðausturkjördæmi í Alþingiskosningunum um síðustu helgi. All strikaði 301 kjósandi yfir nafn Kristjáns Þórs Júlíussonar sem leiddi lista Sjálfstæðisflokks, 277 strikuðu yfir nafn Birkis Jóns Jónssonar leiðtoga Framsóknar og yfir nafn Kristjáns Möller oddvita Samfylkingarinnar striuðu 233. Þá strikuðu 148 yfir nafn Sigmundar Ernis Rúnarssonar sem skipaði annað sæti á Samfylkingu. Útstrikanir voru þó hvergi það margar að það hefði áhrif á röð framboðslista.

Athugaemdir