Guðný Kristmannsdóttir myndlistarkona og Björn Þórarinsson, betur þekktur sem Bassi, voru í gær útnefnd bæjarlistamenn Akureyrar fyrir næsta ár. Þau hafa bæði starfað að list sinni í fjölda ára og munu sinna listinni sem bæjarlistamenn í sex mánuði hvort. Þá veitti Húsaverndunarsjóður Akureyrar aðstandendum Friðbjarnarhúss viðurkenningu og tóku þeir Gunnar Lórenzson, Guðmundur Magnússon og Árni Valur Viggósson á móti henni, en þeir hafa lagt gríðarlega mikið á sig við endurbætur á húsinu. Byggingarlistaverðlaun Akureyrarbæjar voru að þessu sinni veitt fyrir breytingar á eldra húsnæði og var það mat stjórnar Akureyrarstofu og ráðgjafa hennar að þessa viðurkenningu ætti skilið að fá verslunin Eymundsson-Penninn við Hafnarstræti 91-93 en hönnuðir þeirra breytinga sem gerðar voru á versluninni eru þau Valdimar Harðarson og Steinunn Guðmundsdóttir frá Arkitektastofunni ASK.
Versluninni Eymundsson-Pennanum var einnig veitt viðurkenning fyrir sitt framlag til eflingar miðbæjarins. Að síðustu var veitt viðurkenning Menningarsjóðs fyrir framlag til menningar og lista í bænum og þótti Sigurður Heiðar Jónsson vel að henni kominn en framlag hans til menningarlífs á Akureyri og til uppbyggingar Listagilsins er mikið og ótvírætt. Vefsíðar Akureyrarbæjar greindi frá.
Mynd: Akureyri.is


