Lýðræðið fótum troðið í Norðausturkjördæmi

Skrifað 03. mars 2009 klukkan 03:59 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Bernharð Arnarson hefur ákveðið að draga framboð sitt á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi til baka en hann bauð sig fram í 5. – 8. sæti. 

Ástæðan er ólíðandi framganga stjórnar Kjördæmasambands Norðausturkjördæmis sem studd er af landsstjórn flokksins.  Ákvarðanir þær sem stjórnirnar hafa tekið undangengna daga eru í slíkri andstæðu við öll réttlætis- og jafnræðissjónarmið að annað eins er fáséð og alls ekki í anda eða samkvæmt gildum Framsóknarflokksins. Augljóst er að stjórn kjördæmasambandsins gerir allt til að tryggja stöðu ákveðinna frambjóðenda umfram aðra. Stjórn kjördæmasambandsins hefur með ákvörðunum sínum sýnt fram á algjört vanhæfi sitt við undirbúning alþingiskosninga og verður því að draga í efa öll störf þeirra segir í tilkynningu frá Bernharð Arnarsyni.

Athugaemdir