Við höfum áhyggjur af því að lánið frá AGS Alþjóðagjaldeyrissjóðnum muni svipta þjóðina frelsi sínu og sjálfstæði.
Við krefjumst þess að þjóðinni verði kynnt öll skilyrði fyrir AGS-láninu og áætlun um endurgreiðslu, á mannamáli.
Laugardaginn 28. febrúar verður mótmælaganga frá Samkomuhúsinu niður á Ráðhústorg á Akureyri kl 15.00.
Á torginu munu Huginn Freyr Þorsteinnson og Þórarinn Hjartarson taka til máls og í lokin munum við hugleiða réttlæti.
Til skýringar:
Sendinefnd frá AGS kom til landsins á fimmtudaginn var og Alþingi
hefur verið á öðrum endanum vegna þess.
Íslensk stjórnvöld ákváðu í haust að biðja AGS um lán og undirgangast
þau skilyrði sem því fylgja.
Við vitum ekki hver þau skilyrðin eru.
Við vitum bara að sjóðurinn hefur hingað til staðið gegn lækkun vaxta.
Við vitum að meginprinsipp sem sjóðurinn hefur hingað til fylgt eru
a) einkavæðing/markaðsvæðing
b) opnun hagkerfis / afnám viðskiptahamla
c) niðurskurður ríkisútgjalda.
Við vitum líka að flest ríki sem þegið hafa lán sjóðsins hafa að meira
eða minna tapað fullveldi sínu.
Má þar nefna Jamaica, Ecvador, Tanzanía og fleiri lönd.



