Góð aðsókn á sýningu óþekktra mynda á Minjasafninu á Akureyri.

Skrifað 25. febrúar 2009 klukkan 11:25 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Það er ekki ofsögum sagt að ósk Minjasafnsins um aðstoð frá almenningi til að bera kennsl á áningarstaði og þeirra sem þar áðu hafi verið tekið eindæma vel. Hátt í 200 gestir, bæjarbúar og áhugasamir ferðalangar á leið um vetrarríkið Akureyri,  hafa lagt hönd á plóginn og komið er nafn mjög margar myndir. En betur má ef duga skal því enn vantar þó nokkur mörg nöfn á ferðalanga á hópmyndum þó vissulega sé búið að bera kennsl á nokkra þeirra. Starfsfólk Minjasafnsins hvetur því áhugasama um að gera sér ferð á safnið til að vita hvort þeir geti komið með nýjar upplýsingar um myndirnar.
Sýningin samanstendur af 80 óþekktum myndum úr safni Minjasafnsins. Á henni má meðal annars sjá nokkrar litmyndir sem talið er að séu meðal þeirra elstu á landinu. Hluti myndanna á sýningunni eru úr eigu Ferðafélags Akureyrar, en félagið varðveitti þær á glerplötum. Það gerði þeim kleift að varpa þeim uppá á vegg fyrir almenning.  Óþekktar myndir úr safni Bárðar Sigurðssonar, úr Mývatnssveit, og Ara Leós Björnssonar, ljósmyndara á Akureyri, má einnig sjá á sýningunni. Þeir ferðuðust víða um landið og tóku myndir.
Sýningin er opin um helgar til og með 15. mars frá 14-16.
Allir eru velkomnir – enginn aðgangseyrir er að safninu þennan tíma.

Athugaemdir