Myndband Atómstöðvarinnar bannað

Skrifað 26. september 2008 klukkan 02:28 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Atómstöðin hefur sent frá sér nýtt lag í spilun. Lagið ber heitið Mace og er að finna á breiðskífunni Exile Republic, sem sveitin sendi frá sér nýverið. Mace þykir gefa tiltölulega góða mynd af nýjustu afurð sveitarinnar.  Lagið er blússkotið rokklag og vísar, samkvæmt gagnrýnendum, í hið sígilda L.A.-rokk sem ruddi sér til rúms í 
Los Angeles á síðari hluta 20. aldarinnar og ól af sér hljómsveitir á borð við LA Guns og Guns and Roses.

“Lagið og textinn fjalla um þær skyldur sem felast í að ganga brautir rokksins að fullu; partíin endalausu sem löngu eru orðin stefnu- og getulaus, macho-ið, kúlið, kynlífið og vímuna sem allt er keyrt í botn með drykkju og annarri neyslu til að maxa núið, sama hvað það kostar … eins og enginn sé morgundagurinn,” segir Prins Grímsson, gítarleikari sveitarinnar.

Myndbandið bannað
Atómstöðin hefur einnig sent frá sér myndband við lagið Mace. “Myndbandið er samsuða frá hinum og þessum uppákomum 
síðustu mánaða í lífi Atómstöðvarinnar, allt frá hefðbundnum tónleikatökum til misgáfulegra uppátækja meðlima og áhangenda sveitarinnar. Það er helst áfengissýki, villimennska og almennur ósómi sem virðist vera rauði þráðurinn í þessu þegar maður sér þetta svona utanfrá … en það er ekki alltaf auðvelt að vera í rokkhljómsveit,” segir Hrói, bassaleikari Atómstöðvarinnar.

Þó nokkrar vikur eru frá því að myndbandið var klárað í upphaflegri mynd. Myndbandið þurfti hins vegar að taka af markaði af velsæmisástæðum. Helstu sjónvarpsstöðvar landsins settu sýningarbann á það auk þess sem því var hent út af YouTube og fleiri netsíðum vegna nektarsena og ósiðsamlegs athæfis sem finna mátti í því. Nú hefur verið lokið við fjölskylduvænni klippingu og myndbandið komið í spilun á Skjá einum og Skífunni TV auk þess sem hægt er að finna það á netinu, segir í tilkynningu.

 

Lokað fyrir athugasemdir.