Í tilkynningu frá Vegagerðinni í dag, föstudag, klukkan 10 kemur fram að krapi er á Öxnadalsheiði en fólk er beðið að vera vakandi fyrir því að vegna lágs hitastigs gæti myndast hálka víðar, einkum á fjallvegum.
Síðdegis sendi Vegagerðin frá sér tilkynningu um að heiðin væri orðin auð og því greiðfær.
Spáð er austlægri átt og rigningu fram eftir degi en síðdegis snýst í norðvestan 13-20 með skúrum. Hiti verður 5-13 stig í dag en heldur lægri á morgun.



