Brynhildur Óladóttir, sóknarprestur í Langanesbyggð, ætlar að skora á aðrar kraftakonur til keppni í Langanesvíkinginum sem fram fer á Kátum dögum á Þórshöfn um helgina. Hátíðin sjálf er rótgróin fjölskylduhátíð og undanfarin ár hefur Langanesvíkingurinn verið partur af fjölbreyttri dagskrá. Þar er keppt í ýmsum greinum og það skemmtilegasta við keppnina er að hver sem er getur tekið þátt og skráning fer fram á staðnum. Brynhildur segist hvergi bangin að vera með en hún tók einnig þátt í keppninni í fyrra og hafði mikið gaman af. Hún segist fá sína krafta með því að borða íslenskt lambakjöt og hundasúrur úr landi Skeggjastaða, en hún býr á prestsetrinu þar og stundar búskap auk þess að vera sóknarprestur. Í fyrra sigraði Margrét Níelsdóttir bóndakona kvennagreinarnar í Langanesvíkinginum en Brynhildur ætlar að reyna sitt besta til að slá henni við núna. Hún segist ekki hafa stundað markvissar æfingar eða kraftlyftingar enda sé keppnin öll hin frjálslegasta, þó hafi hún hugleitt að byrja æfingar strax í vor fyrir keppnina. Það er óhætt að segja að hún sé verðugur keppinautur enda ekki á hverjum degi sem býðst að togast á við prestinn í orðsins fyllstu merkingu. Íslenska kraftlyftingafélagið sér um keppnina eins og í fyrra, en þá vakti hún mikla lukku hátíðargesta.
Dagskrá Kátra daga stendur yfir frá 17.-20. júlí en hátíðin hefur verið haldin árlega síðan 2001. Þar kennir ýmissa grasa og margt er í boði fyrir gesti og gangandi, jafnt unga sem aldna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Allar upplýsingar um hátíðina má finna á lyngholt.is



