Viðburðir

Sjálfstyrking kvenna í Rósenborg

Skrifað 30. nóvember 2009 klukkan 22:16 | | Viðburðir |

Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir heldur námskeið í Rósenborg fyrir konur þar sem hún mun fjalla um sjálfsstyrkingu kvenna. Petrína hefur á undanförnum árum haldið fjölmörg námskeið í sjálfsstyrkingu bæði fyrir konur og einnig unglinga sem og um styrkingu sjálfsmyndar á heimilinu. Námskeiðið er í boði Glerárkirkju. Nú hvetjum við allar konur til þess að nýta sér tækifærið og koma að hlusta á þessa frábæru konu sér að kostnaðarlausu. Allir eru hjartanlega velkomnir. Skráning er til hádegis miðvikudaginn 9. desember á rosenborg@akureyri.is eða í síma 862 0129.

Fimmtudagur 10. desember kl. 10-12


LA frumsýnir Lykilinn að jólunum

Skrifað 24. nóvember 2009 klukkan 12:35 | | Viðburðir |

Nýtt hugljúft fjölskylduleikrit frumsýnt 27. nóvember í Rýminu.
Höfundur Snæbjörn Ragnarsson, tónlist eftir hann og Baldur Ragnarsson.
Hvernig kemst einn jólasveinn yfir að gefa í alla þessa skó á einni nóttu???
Svarið fæst í Lyklinum að jólunum!!
Aðeins sýnt fram að jólum! sjá nánar: www.leikfelag.is


Útgáfutónleikar Ingu Eydal á Græna hattinum

Skrifað 24. nóvember 2009 klukkan 12:33 | | Viðburðir |

Útgáfutónleikar Ingu Eydal á Græna hattinum. Inga leikur ljúf og þægileg lög af plötu sinni "Ástarljóðið mitt", sem kemur út þennan sama dag.


Einar Kára með námskeið um Sturlungu

Skrifað 05. nóvember 2009 klukkan 14:31 | | Viðburðir |

Skáldið og sagnameistarinn, Einar Kárason, verður með námskeið um Sturlungu á Sigurhæðum um næstu helgi. Námskeiðið hefst með "upphitun" á föstudagskvöldið klukkan 20 en síðan hefst leikurinn fyrir alvöru klukkan 10 á laugardaginn og stendur fram eftir degi. Í hádeginu verður boðið upp á velling og slátur að gömlum íslenskum sið. Einar Kárason er "drýgindalegur sögumaður, en hógvær og lítillátur þess á milli" sagði Bragi Kristjónsson, fornbókasali og heimspekingur, um Einar í síðustu Kilju. Einar þekkir Sturlungu eins og puttana á sér og mun hann meðal annars kenna þátttakendum á námskeiðinu hvernig best er að lesa þessa merku sögu, því hann telur vonlítið að ætla sér að byrja á fyrstu síðu og enda á þeirri síðustu!!!! En hvort heldur sem þekkja Sturlungu eða ekki, þá er næsta víst að þeir hafa gaman af námskeiði með Einari, því hann er með skemmtilegri sögumönnum landsins. 15-20 manns komast á námskeiðið, sem kostar 6.500 krónur. Vellingur og slátur innifalið. Bókanir í síma 462 6649 eða með tilkynningu á póstfangið gis@simnet.is.


Málmblásaratríó í Ketilhúsinu

Skrifað 05. nóvember 2009 klukkan 14:31 | | Viðburðir |

Tónlistarfélag Akureyrar í samstarfi við Menningarmiðstöðina Listagili og RUB23 bjóða til föstudagsfreistinga í Ketilhúsinu 6. nóvember 2009 kl. 12.15. Málmblásaratríó leikur verk eftir Johann Sebastian Bach, Georg Friedrich Händel og Francis Poulenc. Tríóið skipa þeir Vilhjálmur Ingi Sigurðarson trompet, Helgi Þ. Svavarsson horn og Kaldo Kiis básúna. Miðaverð er 2.000 kr., eldri borgarar 1.500 og er súpa innifalin í verðinu. Ekki er tekið við greiðslukortum.


Ingó & Veðurguðirnir í Brekkuskóla

Skrifað 05. nóvember 2009 klukkan 14:30 | | Viðburðir |

Ingó úr hljómsveitinn Ingó & Veðurguðirnir er á ferð hringinn í kringum landið einn með kassagítarinn. Ingó mun fara í nokkra grunnskóla landsins og skemmta krökkum á öllum aldri. Fimmtudaginn 5. nóvember heldur Ingó fjölskyldutónleika í Brekkuskóla á Akureyri kl. 20.00. Miðaverð er 1.000 kr.


Tónleikar til styrktar Aflinu

Skrifað 05. nóvember 2009 klukkan 14:29 | | Viðburðir |

Tónleikar til styrktar Aflinu verða í Akureyrarkirkju 5. nóvember kl. 20.00. Fram koma Karlakór Akureyrar og Geysis, Friðrik Ómar, Óskar Pétursson, Inga Eydal, Hundur í óskilum og Heimir Ingimarsson. Kynnir kvöldsins er Bryndís Ásmundsdóttir leik- og söngkona. Miðaverð er hógvært eða 1.000 kr. og eins gott að vera með 1.000 kallinn í vasanum því enginnn posi verður á staðnum.


Sagan af dátanum í Samkomuhúsinu

Skrifað 08. október 2009 klukkan 10:51 | | Viðburðir |

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands setur upp Sögu dátans eftir Igor Stravinsky í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Stravinsky samdi verkið fyrir þrjá leikar, dansara og litla hljómsveit. Leikstjóri er María Sigurðardóttir og hljómsveitarstjóri Guðmundur Óli Gunnarsson. Verkið fjallar um hermanninn Jósef sem er á leið heim í 14 daga frí. Á leiðinni hittir hann Kölska í gervi gamals manns og selur honum fiðluna sína í skiptum fyrir bók sem á að færa honum óendanleg auðævi. Jósef kemst þó fljótlega að því að auðurinn færir honum ekki hamingju og hann þráir ekkert heitar en að vera fátækur á ný. Verkið sem var frumflutt í Sviss í lok fyrri heimsstyrjaldar er ádeila á mannlega græðgi og auðsöfnun – eitthvað sem virðist eiga erindi nú jafnt sem þá.


Vígslutónleikar flygils á Hlíð

Skrifað 08. október 2009 klukkan 10:50 | | Viðburðir |

Vígslutónleikar nýs flygils á Öldrunarheimilinu Hlíð föstudaginn 9. október kl. 15.00. Nemendur og kennarar Tónlistarskólans á Akureyri koma fram.


Staða kynjanna í kreppunni

Skrifað 08. október 2009 klukkan 10:48 | | Viðburðir |

Tryggvi Hallgrímsson, félagsfræðingur, flytur kl. 17.00 erindi í húsnæði Akureyrarakademíunnar að Þórunnarstræti 99 sem hann nefnir "Staða kynjanna í kreppunni – samtal um jafnréttismál“. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir fyrrum félags- og tryggingamálaráðherra skipaði, í ársbyrjun 2009, vinnuhóp um áhrif efnahagsbreytinga á stöðu kynjanna. Vinnuhópurinn skilaði áfangaskýrslu í lok mars þar sem tilgreindir eru málaflokkar og svið sem sérstaklega þarf að gaumgæfa. Í erindi sínu mun Tryggvi gera grein fyrir niðurstöðum vinnuhópsins og kynna aðferðafræði kynjasamþættingar með áherslu á afleiðingar kreppunnar.


Styttmyndanámskeið á Akureyri og Laugum

Skrifað 06. október 2009 klukkan 15:20 | | Viðburðir |

KvikmyndagerðUngmenna Húsið, félagsmiðstöðvar í hverfum Akureyrar ásamt félagsmiðstöðvum og ungmenna húsum í Fjallabyggð, Dalvík, Norðurþingi, Langanesbyggð og Þingeyjarsveit standa að alhliða námskeiði í stuttmyndagerð. Farið verður í handritsgerð, kvikmyndatöku, leikstjórn og klippingu en námskeiðið stendur í tvo daga.

Kennslan er í höndum Kristjáns Kristjánssonar sem gerði meðal annars Venna Páer þættina.

Kennt verður 10. og 11. okt. að Laugum. Það námskeið er orðið fullt.

Kennt verður 17.og 18. okt. verður kennt í Ungmenna-Húsinu í Rósenborg á Akureyri. Örfá sæti laus!

Kennt verður báða dagana frá kl. 9:00 til kl. 17:00. Kennslan er góður grunnur fyrir þá sem ætlar sér a keppa í Stulla 2009 sem fer fram í desember. Skráning er í síma 460-1240 eða á husid@akureyri.is

Skráningarfrestur rennur út þann 8. okt og er aðgangur ókeypis.
Námskeiðið er haldið vegna myndarlegs styrks frá Eyþing og Rarik


Killer Queen á Græna hattinum

Skrifað 01. október 2009 klukkan 10:15 | | Viðburðir |

Það er ekkert lát á gæðamúsík á Græna Hattinum og það hvín í kofanum á fimmtudagskvöld því þá munu Magni Ásgeirsson og félagar hans í hljómsveitin Killer Queen taka fyrir öll bestu lög hljómsveitarinnar Queen og rúlla þeim upp. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og húsið er opnað kl. 20.00. Miðaverð er kr. 1500 og forsala er hafin í Eymundsson.


Lækning, líkn og siðferði í HA

Skrifað 01. október 2009 klukkan 10:08 | | Viðburðir |

Ráðstefna um lækningu, líkn og siðferði í krabbameins og líknandi meðferð verður haldin á vegum Heilbirgðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri 1. október í stofu L201 Sólborg. Ráðstefnan hefst kl. 8.30 og stendur til kl. 16.00. Fyrirlesarar verða sérfræðingar úr röðum hjúkrunarfræðinga, lækna og heimspekinga með fjölbreyttan bakgrunn í bæði klínískum og fræðilegum störfum sem tengjast efni ráðstefnunnar. Gestafyrirlesari verður prófessor Paul Wainwright, Kingston háskóla og St. George’s háskóla í London.

Dagskrá:

08:30-08:50 – Skráning ráðstefnugesta, afhending ráðstefnugagna
09:00-09:15 – Setning ráðstefnunnar
09:15-09:45 – Hrund Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur og meistaranemi í líknandi meðferð: Þjónusta við krabbameinssjúklinga og líknandi meðferð. Fortíð, nútíð og framtíð
09:45-10:15 – Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor í heimspeki, Háskólanum á Akureyri: Forræðishyggja og viljaverk í krabbameins- og líknandi meðferð
10:15-10:45 – Helgi H. Helgason, sérfræðingur í krabbameinslækningum: Hversu lengi á að halda áfram meðferð hjá krabbameinssjúklingum?

Kaffi – 10:45-11:15

11:15-11:45 – Dr. Elísabet Hjörleifsdóttir, dósent í hjúkrun, Háskólanum á Akureyri: Líðan krabbameinssjúklinga og túlkun á tilgangi meðferðar
11:45-12:15 – Dr. med. Valgerður Sigurðardóttir, yfirlækir líknardeildar Landspítala Háskólasjúkrahúsi: Siðferðilegir þættir í krabbameins og líknandi meðferð

Hádegishlé – 12:15-13:15

13:15-13:45 – Paul Wainwright, prófessor í hjúkrun, Kingston háskóla og St. George’s háskóla London: Virðing í líknandi meðferð
13:45-14:15 – Kristján Kristjánsson, prófessor í heimspeki, Háskóla Íslands: Líknardráp: Með eða á móti?
14:15-14:45 – Helgi H. Helgason, sérfræðingur í krabbameinslækningum: Líknardráp í Hollandi

Kaffi – 14:45-15:00

15:00 – 16:00 – Pallborðsumræður
16:00 – Ráðstefnuslit


Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar í Kunstraum Wohnraum

Skrifað 29. september 2009 klukkan 14:41 | | Viðburðir |

Sunnudaginn 4. október 2009 klukkan 11-13 opnar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýninguna “Réttardagur 50 sýninga röð” í Kunstraum Wohnraum á Akureyri.

Sýningin er svipmynd af fjölskyldu, sláturgerð og vangaveltur um líðandi stund.

Fyrir rúmu ári lagði Aðalheiður af stað með verkefni sem nefnist "Réttardagur 50 sýninga röð". Settar verða upp 50 ólíkar sýningar víða um heim, á tímabilinu júní 2008 til júní 2013. Sýningarnar fjalla allar á einn eða annan hátt um þá menningu sem skapast um og frá sauðkindinni.

Næstu sýningar verða í Stuttgart, London, Aðventa í Freyjulundi og Berlín.

Myndir af verkum Aðalheiðar og upplýsingar eru á síðunni www.freyjulundur.is

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður í síma 865 5091 og í adalheidur@freyjulundur.is

Kunstraum Wohnraum hefur verið starfrækt frá árinu 1994, fyrst í Hannover og nú á Akureyri. Það er til húsa á heimili Hlyns Hallssonar og Kristínar Kjartansdóttur í Ásabyggð 2. Sýning Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur stendur til 6. desember 2009 og er opin eftir samkomulagi og hægt er að hringja í síma 462 3744.

Nánari upplýsingar um Kunstraum Wohnraum er að finna á: http://www.hallsson.de/projects/kunstraum_wohnraum/kunstraum_wohnraum.html


Málstofa í viðskiptafræði

Skrifað 29. september 2009 klukkan 14:39 | | Viðburðir |

Föstudaginn 2. október flytur Dr. Hans Kristján Guðmundsson erindi á málstofu í viðskiptafræði undir heitinu: Fjárfestingar í rannsóknum og þróunarstarfi – hverju skila þær? Fyrirlesturinn hefst kl. 12:10 í stofu R311 á Borgum.



Viðburðir