Viðburðir

50 ára afmælissýning í Hofi

Skrifað 02. febrúar 2012 klukkan 15:29 | | Atburðir, Menning, Viðburðir |

Jónas Viðar snýr heim í tilefni 50 ára afmælis síns og heldur sýningu fyrir Akureyringa. Ljósmyndari akureyri.net fékk að líta við í morgun meðan á uppsetningu stóð og taka nokkrar myndir.

Ljósmyndir: Daníel Starrason


Útsvar í beinni útsendingu úr Hofi

Skrifað 30. mars 2011 klukkan 11:04 | | Menning, Viðburðir |

útsvarLið Akureyrar og Norðurþings etja kappi í útslitaviðureign Útsvars veturinn 2010-2011 nk. föstudagskvöld 1. apríl í beinni útsendingu frá Hofi menningarhúsi. Fólki gefst kostur á að tryggja sér sæti í salnum og þeir sem vilja krækja sér í miða geta gert það í miðasölu Hofs eða í Norðurþings stjórnsýsluhúsinu á Húsavík á morgun fimmtudag kl. 13:00. Nánar »


Minningartónleikar um sr. Pétur Þórarinsson í Laufási

Skrifað 15. mars 2011 klukkan 11:25 | | Viðburðir |
Mynd: miði.is

Mynd: miði.is

Laugardaginn 19. mars verða haldið minningartónleikar um sr. Pétur Þórarinsson í Laufási í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 19. tónleikarnir hefjast kl. 20. Þar koma fram norðlenskir listamenn; hljóðfæraleikarar, kórar, kvartett og einsöngvarar, en hljómsveitarstjóri verður Gunnar Þórðarson.

Mynd: Palli Jóh

Mynd: Palli Jóh

Kórarnir sem syngja á tónleikunum eru Hymnodia og kammerkórinn Ísold undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar og sameinaðir sóknarkórar sr. Péturs, sem Petra Björk Pálsdóttir stjórnar, Álftagerðisbræður syngja eins og þeim einum er lagið og einsöngvarar og einleikarar verðam.a. Lára Sóley Jóhannsdóttir, Hjalti Jónsson, Óskar Pétursson, Örn Viðar Birgisson og Sveinn Dúa Hjörleifsson. Jafnframt verður á tónleikunum, milli laga, brugðið upp myndbrotum úr lífi Péturs, m.a. myndum frá eftirminnilegum tónleikum, sem haldnir voru í Glerárkirkju til styrktar Pétri fyrir hálfum öðrum áratug.

Miðaverð á tónleikana er 2500 krónur. Þetta er viðburður sem óhætt er að mæla með – meira um þennan viðburð og miðasla www.menningarhús.is


Skriðjöklarnir á Græna hattinum

Skrifað 01. apríl 2010 klukkan 15:19 | | Viðburðir |

Hljómsveitin Skriðjöklarnir verður með hljómleika á Græna hattinum þann 3. apríl n.k.


Andrésar Andar leikarnir

Skrifað 01. apríl 2010 klukkan 15:18 | | Viðburðir |

Um 800 krakkar á aldrinum 6-12 ára koma saman til þess að taka þátt í skíðmóti sem haldið hefur verið í 34 ár. Með börnunum koma gríðalega margir foreldrar.


Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju

Skrifað 22. janúar 2010 klukkan 15:56 | | Viðburðir |

Guðsþjónusta kl. 11.00. Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11.00. Umsjón Halla og Heimir. Guðsþjónusta á Kjarnalundi kl. 14.00. Guðsþjónusta á Hlíð kl. 15.00.


Þjónn í súpunni

Skrifað 22. janúar 2010 klukkan 15:40 | | Viðburðir |

Leikfélag Akureyrar og Veitingastaðurinn Friðrik V hafa tekið upp þráðinn frá síðasta leikári og bjóða upp á 3ja rétta máltíð og “óhefðbundna þjónustu” á Friðrik V. Þjónar leika, leikarar þjóna, allir leika á gesti og gestirnir leika á als oddi. Leikstjóri er María Sigurðardóttir, leikhússtjóri LA. Nú eru nýir ”þjónar” með í för og forvitnilegt að vita hvernig þeir reynast! Þetta er uppákoma sem byggir á spuna og stemmningu og aldrei að vita hvað gerist, því engar tvær sýningar eru eins. Matseðillinn er saminn af Friðriki V sjálfum, er hann þekktur fyrir dýrindis mat. Síðastliðinn vetur var uppselt öll kvöldin og oft var biðlisti eftir borðum. Það borgar sig því að vera snemma í því og panta borð í tíma. Verð kr. 5.900. Innifalið er leiksýning og þriggja rétta kvöldverður með víni. Miða er hægt að panta á: fridrikv@fridrikv.is og í síma 461 5775. Þjónn í súpunni kl. 18.30 á Friðriki V.


Joris Rademaker í Listasafninu á Akureyri

Skrifað 28. desember 2009 klukkan 11:41 | | Viðburðir |

Laugardaginn 16. janúar verður opnuð yfirlitssýning á verkum hollenska myndlistarmannsins Jorisar Rademaker (f. 1958) og mun Listasafnið á Akureyri af því tilefni gefa út tæplega 90 síðna bók með ítarlegri umfjöllun um feril hans og list eftir Úlfhildi Dagsdóttur bókmenntafræðing.

Joris hefur verið búsettur á Akureyri síðan 1991 og verið ein helsta sprautan í menningarlífi bæjarins, rekið þar grasrótarsalinn Gallerí+ í yfir áratug ásamt konu sinni, Guðrúnu Pálínu, og sinnt myndlistarkennslu um langt árabil. Myndlist Jorisar spannar ólíkar stefnur og rífur skörð í þá múra sem eitt sinn stóðu fyrir kynslóðabil andstæðra fylkinga. Hann vinnur með hugsanaflæði, bæði tvívítt og þrívítt, og styðst við fundna hluti og látlausan, gjarnan lífrænan, efnivið eins og tré, pappír, tau, blek og þrykk. Ákveðin stef eru könnuð í mörgum mismunandi útfærslum og byggja á formrænni einföldun þar sem möguleikar skynjunar og alls konar skynvilluleikir ráða ferðinni.

Sýningin stendur til 7. mars 2010.


Sjálfsmyndir í sal Myndlistarfélagsins

Skrifað 28. desember 2009 klukkan 11:37 | | Viðburðir |

Súpan sýnir afrakstur samstarfs síns við unga sem aldna allt frá nyrstu ströndum til nafla alheimsins á fjórum farandsýningum og þar á meðal í Box-inu, sal Myndlistarfélagsins á Akureyri.

Sýningarnar eru: 1. Bragganum í Öxarfirði,Frumsýning laugard.14. nóvember kl. 13-17

2. SÍM-húsinu Hafnarstræti 16, Reykjavík, 5.-18. desember Opnun laugard. 5. desember kl. 16-18

3. Kaffistofunni Nemendagallerí Listaháskólans Hverfisgötu 42, Reykjavík 5.-6. des. Opnun laugard. 5. Desember kl.14-16

4. Box–inu, Sal myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri 16. janúar – 6. febrúar 2010Opnun laugardaginn 16. janúar kl.14

Björg Eiríksdóttir myndlistakona/myndlistakennari VMA
Edda Þórey Kristfinnsdóttir myndlistakona Korpúlfsstöðum
Jóna Bergdal Jakobsdóttir myndlistakona/málari Eskifirði
Unnur G. Óttarsdóttir listmeðferðarfræðingur/myndlistakona
Yst Ingunn St. Svavarsdóttir sálfræðingur/fagurlista-verkakona


Helgi og Hljóðfæraleikararnir á Græna hattinum

Skrifað 28. desember 2009 klukkan 11:31 | | Viðburðir |

Miðvikudaginn 30. desember ætla Helgi og Hljóðfæraleikararnir að telja í sína árlegu áramótatónleika sem hefjast kl. 21.00. Húsið opnað kl. 20.00 og forsala er í Eymundsson og hefst hún mánudaginn 28. desember. Miðaverð er kr.1500.


Sveinka á Café Karólínu

Skrifað 01. desember 2009 klukkan 11:21 | | Viðburðir |

Sveinka (Sveinbjörg Ásgeirsdóttir) opnar sýninguna “Á meðan ég svaf“ á Café Karólínu laugardaginn 5. desember klukkan 15. Sýningin samanstendur af draumkenndum fígúratífum vatnslita-blek myndum sem málaðar eru á ríspappír sem spilar sitt hlutverk með litunum.


Norrænt málþing í Ketilhúsinu

Skrifað 30. nóvember 2009 klukkan 23:39 | | Viðburðir |

Er grasið grænna hinum megin
Norrænt samstarf á krepputímum

Norræna upplýsingaskrifstofan stendur fyrir málþingi 2. desember 2009 kl. 16:00-18:00 í Ketilhúsinu á Akureyri.

Markmið með málþinginu er að skapa tækifæri til umræðu um stöðu fólks varðandi búsetuskilyrði á krepputímum. Hverjar eru aðstæður ungs fólks. Hvaða norrænu samstarfsúrræði eru til. Getum við lært af frændþjóðunum? Flutningur úr landi er hann jákvæður eða neikvæður fyrir þjóðfélagið? Hvernig er að flytja heim í ríkjandi samfélagsástand.

Fyrirlesarar eru: Helgi Hjörvar, forseti Norðurlandaráðs: Gestur Guðmundsson, prófessor í félagsfræði menntunar, Soffía Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar Norðurlandi eystra, Arnaldur Bárðarson, prestur við Glerárkirkju og Brynja Harðardóttir, lýðheilsufræðingur og myndlistakona:
Fundarstjór er Sigrún Stefánsdóttir, stjórnarformaður Norrænu upplýsingskrifstofunnar

Allir velkomnir! – Sjá nánar á www.akmennt.is/nu


Helga Möller á Græna hattinum

Skrifað 30. nóvember 2009 klukkan 22:20 | | Viðburðir |

Söngkonan Helga Möller heldur aðventutónleika á Græna hattinum kl. 21.00. Húsið opnað kl. 20.00.


Fimmta barnið á Amtsbókasafninu

Skrifað 30. nóvember 2009 klukkan 22:18 | | Viðburðir |

Eyrún Ýr Tryggvadóttir les upp úr nýrri spennusögu sinni

Í fyrra skaust fram í sviðsljósið óþekktur glæpasagnahöfundur á Íslandi, og gaf þeim sem fyrir voru ekkert eftir. Þetta var og er bókasafnsfræðingur á Húsavík, Eyrún Ýr Tryggvadóttir. Hvar er systir mín? hét þessi spennusaga hennar, og nú hefur hún lokið við sjálfstætt framhald þeirrar bókar. Ber hún nafnið Fimmta barnið og segja kunnugir að hún gefi þeirri fyrri ekkert eftir.

Eyrún Ýr mun koma á Amtsbókasafnið fimmtudaginn 10. desember kl. 17:15 og lesa upp úr bókinni sinni, ásamt því að svara spurningum safngesta ef einhverjar verða. Í fyrra vakti hún mikla athygli fyrir hressilegan og skemmtilegan upplestur, og umfjöllun. Hún mun eflaust gera það aftur núna.

Spennandi glæpasaga, spennandi höfundur – spennandi dagur!!!
Fimmtudaginn 10. desember 2009, kl. 17:15


Jólasöngvar í Ketilhúsinu

Skrifað 30. nóvember 2009 klukkan 22:17 | | Viðburðir |

Kvennakórinn Embla flytur jólasöngva í Ketilhúsinu föstudagskvöldið 11. desember kl. 20.00. Þetta er jólagjöf kórsins til Akureyringa þar sem allir eru velkomnir sem vilja þiggja og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis. Sungin verða hefðbundin jólalög ásamt jólalögum eftir akureyrsk tónskáld. Undirleikari með kórnum á flautu, hljómborð og píanó er Helga Kvam. Stjórnandi er Roar Kvam.



Viðburðir