VefTV

Metþátttaka í kröfugöngu stéttarfélaganna

Skrifað 01. maí 2009 klukkan 16:37 | | Fréttir, VefTV |
Gangan var sú fjölmennasta í áratugi

Gangan í dag var sú fjölmennasta í áratugi

Mikið fjölmenni tók þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna á Akureyri í dag. Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju sagði í ræðu sinni að þetta væri besta mæting sem hann hefði séð á nær 30 ára ferli sínum. Veðrið lék við Akureyringa og mikill baráttuhugur var í göngumönnum.

Gengið var frá Alþýðuhúsinu í Sjallann við undirleik Big-bands og trommusveitar Tónlistarskólans á Akureyri. Í göngugötunni spiluðu nokkrir gítarleikarar ljúfa tóna á meðan gangan fór framhjá. Hátíðardagskrá fór fram í Sjallanum að göngu lokinni og þar var einnig boðið upp á kaffihlaðborð. Aðal ræðu dagsins flutti Sigurður Bessason, formaður stéttarfélagsins Eflingar.

Horfa á frétt »


Stungu sér til sunds á Pollinum

Skrifað 29. apríl 2009 klukkan 20:27 | | Fréttir, VefTV |

sjosundNokkrir sundkappar skelltu sér í sjóinn úti fyrir hinu rísandi menningarhúsi síðdegis í dag. Þó sólin væri hátt á lofti var sjórinn nokkuð kaldur, eða um 6 gráður og vindur mikill. Sundmennirnir létu það þó ekki aftra sér og tóku syntu lítinn hring á Pollinum, enda sagðist forsprakki hópsins hafa séð það mun verra. Fréttamenn Akureyri.net festu atvikið á filmu.

Horfa á frétt »


Ólík sjónarmið standa ekki í vegi fyrir vinstristjórn

Skrifað 24. apríl 2009 klukkan 15:56 | | Fréttir, VefTV |

Björn Valur Gíslason skipar þriðja sæti á lista Vinstri-Grænna í Norðausturkjördæmi. Hann segir helstu stefnumál flokksins í kjördæminu vera að standa vörð um atvinnu fólks sem og fyrirtæki sem eiga erfitt uppdráttar í atvinnulífinu. Hann segir ennfremur að ef svo fer að VG og Samfylking myndi stjórn muni tvö stærstu ágreiningsmál flokkanna, stóriðjuframkvæmdir og ESB aðild, ekki standa í vegi fyrir að stjórnin geti starfað eðlilega. Til að sporna við atvinnuleysi í landinu ætla VG að leggja áherslu á byggðatengd málefni, svo sem landgræðslu, fiskvinnslu, vegagerð og ferðamannaiðnað.

Horfa á frétt »


Auðlindin á að vera sameign þjóðarinnar

Skrifað 24. apríl 2009 klukkan 13:23 | | Fréttir, VefTV |

“Fólkið í landinu vill fá auðlindina til baka, úr höndunum á þeim örfáu sem ráða henni núna,” segir Hallgrímur Guðmundsson fisksali, sem skipar 11. sæti á lista Frjálslynda flokksins. Hann segir mikinn meðbyr með skoðunum flokksins, um breytt fiskveiðistjórnarkerfi. “Náttúran á að segja okkur hvað við eigum að taka úr henni. Líffræðiþátturinn er því miður ekkert notaður, það eru bara stærðfræðiformúlur sem eru notaðar, og það er það vitlausasta sem við getum gert.”

Horfa á frétt »


Spáir stjórnarflokkunum sex þingsætum í Norðausturkjördæmi

Skrifað 22. apríl 2009 klukkan 22:39 | | VefTV |
Grétar spáir því að tvö þingsæti færist frá Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk til Samfylkingar og VG

Grétar spáir því að tvö þingsæti færist frá Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki til Samfylkingar og VG

Kosið verður til Alþingis á laugardag og er útlit fyrir góða kosningaþátttöku. Akureyri.net fékk Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, til að rýna í kannanir og spá fyrir um úrslit kosninganna í Norðausturkjördæmi. Grétar segir að skýrt hafi verið kallað eftir þessum kosningum, en þær hafi ef til vill komið of snemma til að verulegar breytingar gætu átt sér stað.

“Það virðist vera að fjórflokkurinn ætli að standa þessar kosningar af sér, eins og svo oft áður. Lengi vel hélt maður að hann stæði einn eftir, þar sem Frjálslyndi flokkurinn virðist nú vera að hverfa, en allra síðustu kannanir benda eindregið til þess að Borgarahreyfingin muni fá menn kjörna á þing.” Grétar segir að það séu auðvitað ákveðin tíðindi ef svo verði. Hann spáir Samfylkingu og Vinstri-Grænum hvorum um sig þrem mönnum á þing í Norðausturkjördæmi og að sama skapi tapi Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur því hvor sínu þingsætinu nú á laugardag.

Horfa á frétt »


Verðum að nýta auðlindir í sátt við þjóð og náttúru

Skrifað 22. apríl 2009 klukkan 00:16 | | VefTV |

Anna Guðný Guðmundsdóttir, sem skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, segir helsta stefnumál flokksins í Norðausturkjördæmi vera að standa vörð um atvinnulífið. Til þess þurfi að nýta þær auðlindir sem við eigum í sátt við fólkið í landinu og náttúruna. Örlygur Hnefill Örlygsson hitti Önnu og spurði út í atvinnusköpun og stjórnarþáttöku eftir kosningar.

Horfa á frétt »


Orkuna þarf að beisla í þágu atvinnulífsins

Skrifað 21. apríl 2009 klukkan 03:20 | | VefTV |

Sigmundur Ernir Rúnarsson, sem skipar annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, segir mannaflsfrekar framkvæmdir nauðsynlegar til halda atvinnulífinu gangandi. Hann er þeirrar skoðunar að orku á Norðausturhorninu eigi að nýta til að byggja upp störf og skoða verði alla kosti til nýtingar hennar vel. Fréttamenn Akureyri.net hittu Sigmund og spurðu út í Evrópumál, samgöngumál og enduruppbyggingu efnahagskerfisins.

Horfa á frétt »


Nauðsynlegt að halda lífi í framleiðslufyrirtækjunum

Skrifað 18. apríl 2009 klukkan 21:23 | | VefTV |

Í dag er vika til Alþingiskosninga en þá geta kjósendur í Norðausturkjördæmi valið milli þeirra 7 lista sem bjóða fram í kjördæminu. Til að kynnast betur frambjóðendunum og stefnumálum þeirra ætlum við að taka frambjóðendur af öllum listum tali. Örlygur Hnefill Örlygsson og Kolbjörn Ivan Matthíasson hittu fyrir Höskuld Þórhallsson, sem skipar annað sæti á B lista Framsóknarflokksins og spurðu hann út í helstu baráttumál Framsóknar og stöðuna í stjórnmálunum á þessu kosningavori.

Horfa á frétt »


Kristín Lea krýnd Ungfrú Norðurland

Skrifað 17. apríl 2009 klukkan 23:58 | | Fréttir, VefTV | 9 athugasemdir |
Stúlkurnar fimm sem keppa fyrir hönd Norðurlands í Ungfrú Ísland.

Stúlkurnar fimm sem keppa fyrir hönd Norðurlands í Ungfrú Ísland.

Kristín Lea Sigríðardóttir var í kvöld krýnd Ungfrú Norðurland í Sjallanum. Þrettán stúlkur tóku þátt í keppninni sem var hin glæsilegasta. Kristín Lea er 21 árs og útskrifast í vor sem stúdent frá Framhaldsskólanum á Laugum. Auk þess að vera valin Ungfrú Norðurland vann Kristín einnig titlana netstúlka Sjallans og Ryk stúlkan.

Stefanía Ingadóttir varð í öðru sæti og Katrín Emma hafnaði í þriðja sæti. Þær keppa í Ungfrú Ísland ásamt Heiðdísi Rósu og Kristrúnu Ösp sem lentu í fjórða og fimmta sæti.

- Horfa á útsendinguna frá keppninni

- Myndir af stúlkunum í keppninni

Horfa á frétt »


Aldrei fleiri skólar í Söngkeppninni

Skrifað 17. apríl 2009 klukkan 01:20 | | Fréttir, VefTV | 2 athugasemdir |

Söngkeppni framhaldsskólanema fer fram í íþróttahöllinni á Akureyri um á laugardagskvöl. Fulltrúar þrjátíu og tveggja skóla taka þátt í keppninni í ár, en hún verður í þetta skipti send út í beint á Stöð 2. Undirbúningur í Höllinni hófst í gærkvöldi en fyrstu keppendur og stuðningsmenn koma til Akureyrar í dag. Fréttamenn Akureyri.net ræddu við fulltrúa MA og Lauga í keppninni og fengu að vita hvaða lög þau munu flytja annað kvöld.

Horfa á frétt »


Passíusálmar lesnir í Svalbarðskirkju

Skrifað 10. apríl 2009 klukkan 10:31 | | Fréttir, VefTV |

Í dag, föstudaginn langa, verða Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni í Svalbarðskirkju. Lesturinn hefst klukkan 11 og er gert ráð fyrir að hann standi til um 4 í dag. Lesarar eru felstir úr sveitinni en alls eru á þriðja tug manna sem lesa sálma í dag. Kirkjan er opin meðan á lestri stendur og fólk getur komið og farið að vild. Þá verður einnig boðið upp á veitingar í safnaðarheimilinu meðan á lestri stendur. Akureyri.net óskar lesendum sínum gleðilegra páska.

Horfa á frétt »


Akureyskar hokkístúlkur Íslandsmeistarar

Skrifað 05. apríl 2009 klukkan 12:03 | | Íþróttir, VefTV |

Stúlkurnar í Skautafélagi Akureyrar sigruðu í kvöld lið Björnsins frá Reykjavík í síðasta leiknum um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí kvenna. Akureyrarstúlkur höfðu reyndar tryggt sér titilinn í leik liðanna í gær og því var sigurinn í kvöld aðeins rúsínan í pylsuendanum. Stúlkurnar sigruðu leikinn í kvöld með fjórum mörkum gegn þrem mörkum sunnanstúlkna.

Horfa á frétt »


Alþingi veitir Bónus verslunum undanþágu frá áfengislögum

Skrifað 01. apríl 2009 klukkan 09:02 | | Fréttir, VefTV |

Alþingi samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi undanþágu frá áfengislögum er varðar sölu á léttvíni og bjór. Verslanir Bónus höfðu sótt um leyfi til slíkrar sölu og var það veitt í gær. Óðin Svan Geirsson, verslunarstjóri Bónus á Akureyri sagði þetta koma sér nokkuð á óvart. “Þetta var rætt á fundi okkar verslunarstjóra allstaðar af landinu í síðustu viku og í framhaldinu ákveðið að leggja inn þessa umsókn. Við áttum þó ekki von á að þetta gengi í gegn svona fljótt. Sjálfur er ég bindindismaður og er því ekkert of spenntur fyrir þessu,” sagði Óðinn. Hann segir að salan byrji í dag en úrvalið verður ekki endilega mikið fyrstu dagana. “Við reynum að bregðast við þessu eins fljótt og við getum og erum búnir að leggja inn stórar pantanir hjá áfengisframleiðendum. Við getum boðið allt íslenskt áfengi í dag og auðvitað bjóðum við besta verðið, en erlendar tegundir verða væntanlega komnar í hillurnar strax eftir helgi,” segir Óðinn.

Horfa á frétt »


Bjarni Benediktsson kjörinn nýr formaður Sjálfstæðisflokksins

Skrifað 30. mars 2009 klukkan 01:49 | | Fréttir, VefTV |

Sjálfstæðisflokkurinn hélt landsfund sinn í Laugardalshöll nú um helgina. Kristján Þór Júlíusson, fyrrum bæjarstjóri á Akureyri, gaf kost á sér til formennsku í flokknum og hlaut rúmlega 40 prósent greiddra atkvæða. Bjarni Benediktsson þingmaður úr Suðvesturkjördæmi bar hins vegar sigur úr bítum með 58 prósent atkvæða og mun því leiða Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum. Því hafði verið spáð að Kristján Þór byði sig fram til varaformennsku ef hann næði ekki kjöri sem formaður, en svo fór ekki. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var endurkjörinn varaformaður með rúmlega 80 prósent atkvæða. Þegar formannskjörinu hafði verið lýst sagðist Kristján Þór munstra sig í áhöfn Bjarna Benediktssonar og lagði mikla áherslu á að flokksmenn sameinuðust á bak við nýjan formann.

Horfa á frétt »


Menntskælingar sýna Kabarett

Skrifað 27. mars 2009 klukkan 09:35 | | Menning, VefTV |

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir þessa dagana verkið Kabarett í Laugaborg í Hrafnagili. Góð aðsókn hefur verið að sýningunni en seinustu sýningar eru nú um helgina. Nýr fréttamaður Akureyri.net, Elísabet Þórunn Jónsdóttir kíkti við og ræddi við einn af aðalleikurum verksins.

Horfa á frétt »



VefTV