Skrifað 02. ágúst 2009 klukkan 19:04 | Ingimar Björn | VefTV | 1 athugasemd | 
Fjöldi fólks tók þátt í hópdansi frá Ráðhústorgi niður á Torfunefsbryggju í gær.
Hátíðin Ein með öllu, sem nú er haldin á Akureyri hefur gengið miklu meira en vel, að sögn Margrétar Blöndal, skipuleggjanda hátíðarinnar. “Það hefur gengið alveg dásamlega, fullt á alla viðburði og bara eins og mann dreymir um að hátíðin sé sem skipuleggjandi.” sagði Margrét í samtali við blaðamann í gær. Hátíðinni lýkur í kvöld með sparitónleikum á Akureyrarvelli, þar sem fram koma meðal annars Páll Óskar, Sigga Beinteins, Mannakorn og Bravó bítlarnir.
Erfitt er að segja til um fjölda fólks í bænum þar sem ekki er selt inn á svæðið eða á viðburði, en ef marka má fjöldann á Ráðhústorgi í gær er mikill mannfjöldi í bænum vegna hátíðahaldanna. ABBA þema hátíðarinnar hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum, en lög og andi ABBA voru allsráðandi í miðbænum í gær. Hápunkturinn var eflaust hópdans bæjarbúa á Torfunefsbryggju, líkt og í kvikmyndinni Mamma Mia!. Þar dönsuðu mörg hundruð manns eins og þeir hefðu aldrei gert annað, eftir stutta danskennslu á Ráðhústorgi. Í myndbrotinu hér fyrir neðan má sjá árangurinn:
Horfa á frétt »
Skrifað 20. júlí 2009 klukkan 15:37 | Ingimar Björn | Fréttir, VefTV | 1 athugasemd | 
Slökkvilið að störfum við Aðalstræti 13 í dag. Mynd/Þórhallur Jónsson.
Slökkvilið Akureyrar var kallað út nú fyrir stundu vegna reyks í húsi að Aðalstræti 13. Kallaður var út auka mannskapur enda er húsið gamalt timburhús og þröngt á milli húsa. Eldurinn virðist hafa komið upp í eldhúsi. Enginn var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp, en ungt par í íbúðinni við hliðina komst slysalaust út ásamt ungu barni sínu.
Búið er að slökkva eldinn í húsinu sem var ekki mikill, en þónokkur hiti var í húsinu. Verið er að leita að glóð á milli þilja, en húsið er sennilega talsvert skemmt. Horfa á frétt »
Skrifað 08. júlí 2009 klukkan 02:08 | Ingimar Björn | Fréttir, VefTV | 1 athugasemd | 
Hermann Jón og sr. Jóna Lísa ásamt friðarhlaupurunum utan við Akureyrarkirkju í gær. Mynd/IngimarB
Það var falleg stund í sólinni utan við Akureyrarkirkju í gær þegar 25 hlauparar allsstaðar að úr heiminum hittu Hermann Jón Tómasson bæjarstjóra og sr. Jónu Lísu Þorsteinsdóttur og báru þeim og Akureyringum öllum boðskap um frið og einingu. Hlaupararnir taka þátt í svokölluðu friðarhlaupi, eða World Harmony Run, sem hlaupið er um allann heim. Þau eru nú hálfnuð í kyndilboðhlaupi sínu umhverfis landið, og kveðja Akureyri klukkan níu, miðvikudaginn 8. júlí. Þá koma þau saman á Akureyrarvelli ásamt leikskólabörnum bæjarins til að sameinast í hinum fallega boðskap hlaupsins.
Friðarhlaupið veitti Hermanni Jóni og Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, forseta bæjarstjórnar, medalíu hlaupsins,“Kyndilberi friðar”, en fyrsti viðtakandi þessara verðlauna var nífaldur Ólympíugullverðlaunahafi og talsmaður Friðarhlaupsins, Carl Lewis. Friðarhlaupið vill leggja áherslu á að medalíurnar sem það veitir Hermanni og Sigrúnu tilheyra jafnframt öllum bæjarbúum Akureyrar, en þar hefur Friðarhlaupið jafnan átt góðan stuðning og hvatningu vísa í gegnum 22 ára sögu sína sem hófst árið 1987.
Horfa á frétt »
Skrifað 26. júní 2009 klukkan 00:54 | Örlygur Hnefill | Fréttir, VefTV | 
Nokkur hópur íslendinga átti miða á fyrirhugaða tónleika Jacksons í London. Mynd/AP
Flesta daga fjallar Akureyri.net um atburði líðandi stundar á Akureyri. Suma daga teygjum við okkur yfir í Þingeyjarsýslur og alla leið út á Siglufjörð þegar stórtíðindi gerast. Í kvöld verður hins vegar haldið talsvert lengra en flesta aðra daga – alla leið til Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem konungur poppsins - Michael Jackson lést í kvöld - fimmtugur að aldri.
Skrifstofa réttarlæknis í Los Angeles staðfesti andlátsfregnina undir miðnætti að íslenskum tíma, en sögusagnir um andlát söngvarans höfðu verið á sveimi í allt kvöld. Jackson hafði skipulagt röð tónleika í Lundúnum á næstu vikum og átti fjöldi íslendinga miða á tónleika hans þar.

Atli Már hefur slegið í gegn með Jackson dansinum sínum. Mynd/ÖHÖ
Hinn 10 ára gamli Jackson aðdáandi, Atli Már Bjarnason frá Akureyri, er meðal þeirra sem hugðust berja goðið augum í Lundúnum. Atli hefur getið sér gott orð á skemmtunum hér í bænum í vetur með dansatriði við lög Jacksons. Móðir Atla segir þau vera döpur yfir fréttunum, enda hafi verið mikil tilhlökkun að sjá kappann og fyrirmyndina á sviði. Þau mæðgin eru nú stödd í Reykjavík, en Atli mun sýna Jackson atriðið sitt í brúðkaupi þar í bæ á morgun.
Til að heiðra minningu poppkongsins látum við hér fylgja með upptöku af dansatriði Atla eins og það kom fyrir augu gesta á keppninnu um Ungfrú Norðurland fyrr í vor.
Horfa á frétt »
Skrifað 22. júní 2009 klukkan 17:33 | Ingimar Björn | Fréttir, VefTV | 
Lögreglan hélt úti stífu fíkniefnaeftirliti s.l. viku.
Síðastliðna viku hefur lögreglan á Akureyri verið með stíft fíkniefnaeftirit m.a. í tengslum við svokallaða Bíladaga. Að eftirlitinu hafa starfað fíkniefnalögreglumenn á Akureyri með fíkniefnahund embættisins, sérsveitarmenn á Akureyri auk vakthafandi lögreglumanna. Um helgina starfaði einnig með hópnum lögreglumaður með fíkniefnaleitarhund frá Blönduósi og er það hluti af samstarfi lögregluliðanna á norðurlandi í baráttunni við fíkniefni.
Alls komu sex fíkniefnmál upp á Akureyri um helgina þar sem lagt var hald á rúm 40 grömm af amfetamíni, um 5 grömm af kókaíni og rúm 15 grömm af kannabisefnum. Þá hafa ellefu ökumenn verið teknir vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna síðustu vikuna.
Virkt fíkniefnaeftirlit var á þjóðveginum við Akureyri þar sem kannað var með gesti á leið í bæinn og einnig voru bifreiðar stöðvaðar innanbæjar. Lögreglumenn óskuðu eftir því að fá að leita sumar af þeim bifreiðum sem stöðvaðar voru með fíkniefnaleitarhundi og var það í flestum tilfellum auðsótt mál af hálfu ökumanna sem í meirihluta tilfella höfðu ekkert að fela. Einnig var eftirlit með fíkniefnaleitarhundi á tjaldsvæðum og í miðbæ Akureyrar.
Horfa á frétt »
Skrifað 10. júní 2009 klukkan 15:52 | Ingimar Björn | Fréttir, VefTV | 
Kristín Lea og Siggi í loftinu fyrr í dag. Mynd/Örlygur Hnefill.
Kristín Lea Sigríðardóttir, fegurðardrottning Norðurlands og nýr liðsmaður Akureyri.net kíkti í útsendingu til Sigga Gunnars á Voice í tilefni afmælis stöðvarinnar, og talaði við þennan lífsglaða útvarpsprins Akureyrar. Hann hefur þrátt fyrir ungan aldur unnið í útvarpi í átta ár, en gleymir enn að slökkva á símanum í útsendingu! Hér fyrir neðan fylgir upptaka af viðtali Kristínar Leu við Sigga, og örfáar myndir frá afmælisveislu Voice, en Helgi Steinar ljósmyndari vefsins leit við og fékk sér köku í gær.
Horfa á frétt »
Skrifað 09. júní 2009 klukkan 17:26 | Ingimar Björn | Fréttir, VefTV | 
Hermann Jón tók við lyklunum að ráðhúsinu síðdegis í dag. Mynd/Örlygur Hnefill
Hermann Jón Tómasson, bæjarfulltrúi Samfylkingar, tók við starfi bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnar nú fyrir stundu. Er það samkvæmt samstarfssamningi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, en þar kom fram að bæjarstjóri skyldi fyrstu 3 árin koma úr röðum sjálfstæðismanna, en síðasta árið frá Samfylkingunni. Hermann er þriðji bæjarstjóri Akureyrar á kjörtímabilinu, en Sigrún Björk Jakobsdóttir, forveri Hermanns, tók við starfinu þegar Kristján Þór Júlíusson var kosinn á þing árið 2007. Kristján Þór hætti á fundinum sem forseti bæjarstjórnar og var Sigrún Björk kosin í það embætti.
Hermann fæddist árið 1959 og ólst upp á Dalvík. Hann stundaði nám í Dalvíkurskóla, Menntaskólanum á Akureyri, Háskóla Íslands og í Texas Tech University. Hann hefur einnig stundað nám í stjórnun við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hann hefur lengst af unnið við kennslu, ráðgjöf og stjórnun í framhaldsskólum, fyrst við Fjölbrautaskóla Vesturlands, síðan í MA og frá 1989 í VMA. Hermann var varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar 2002-2006. Síðan 2006 hefur Hermann Jón gegnt embætti formanns bæjarráðs.
Hermann er kvæntur Báru Björnsdóttur leikskólakennara og eiga þau þrjú börn, Tómas, fæddur 1981, Harpa, fædd 1988 og Bjarki, fæddur 1996.
Enginn aukakostnaður verður vegna skiptanna. Bæði Hermann Jón og Sigrún Björk, fráfarandi bæjarstjóri hafa lýst því yfir að þau muni ekki þiggja biðlaun í lok starfstíma síns sem bæjarstjórar.
Horfa á frétt »
Skrifað 09. júní 2009 klukkan 11:46 | Örlygur Hnefill | Fréttir, VefTV | 
Slökkvilið Grýtubakkahrepps á vettvangi á Kljáströnd fyrr í morgun. Mynd/Örlygur Hnefill
Eldri kona lést í eldsvoða í sumarhúsi á Kljáströnd, skammt frá Grenivík í morgun. Kallað var eftir aðstoð slökkviliðs um klukkan 9 í morgun og komu bílar bæði frá Grenivík og Akureyri á vettvang, en mikill eldur var í húsinu þegar að var komið. Eiginmaður konunnar var einnig í húsinu og var hann fluttur til aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins. Eldsupptök eru ókunn en lögreglan á Akureyri vinnur að rannsókn málsins. Ekki er unnt að greina frá nafni hinnar látnu að svo stöddu.
Horfa á frétt »
Skrifað 08. júní 2009 klukkan 20:50 | Ingimar Björn | Fréttir, VefTV | 
Slökkviliðsmenn hafa stöðvað lekann um borð í Frosta. Mynd/Örlygur Hnefill
Slökkviliðsmönnum í eiturefnabúningum hefur tekist að stöðva lekann um borð í Frosta, sem liggur við bryggju á Grenivík, en tilkynnt var um ammóníakleka um borð á sjöunda tímanum í kvöld. Lekinn var nokkuð alvarlegur, en að sögn lögreglu á vettvangi var bæjarbúum aldrei hætta búin. Þá var maður sem var um borð er lekans varð vart heill á húfi.
Björgunarsveit og lögregla fóru á milli húsa í bænum og athuguðu líðan fólks, en enginn kenndi sér meins eða óþæginda. Einhverjir hestar voru færðir til, og íbúum var bent á að kynda hús sín til að mynda yfirþrýsting. Nú er unnið að því að fella ammoníakið með vatnsúða. Um það bil eitt og hálft tonn af ammoníaki var í kerfi skipsins, og er efnið mjög eitrað, svo að verr hefði getað farið. Að sögn lögreglu á vettvangi hefði þó alltaf mátt sigla skipinu í burtu, hefði bæjarbúum verið hætta búin.
Horfa á frétt »
Skrifað 04. júní 2009 klukkan 18:14 | Ingimar Björn | Fréttir, VefTV | 
Eiríkur rauði og Þórhallur veiðimaður gantast við Guðfinn prest í sýningunni Vínlandi.
Þeir sem misstu af rokksöngleiknum Vínlandi í Freyvangsleikhúsinu í vor fá nú tækifæri til að bæta úr því. Eins geta mikir aðdáendur verksins fagnað og farið aftur, því ákveðið hefur verið að taka Vínland til sýninga á nýjan leik. Aðeins verða tvær sýningar hér norðan heiða en svo heldur leikhópurinn suður yfir heiðar þar sem verkið verður sett upp í Þjóðleikhúsinu. Vínland var eins og lesendur Akureyri.net vita, valið áhugaverðasta áhugaleikverkið á þessu leikári. Sýningarnar í Freyvangi verða fimmtudaginn 4. júní og föstudaginn 5. júní en sýningin í Þjóðleikhúsinu verður svo 12. júní næstkomandi.
Horfa á frétt »
Skrifað 30. maí 2009 klukkan 18:42 | Örlygur Hnefill | Fréttir, VefTV | 
Ökuþórinn Einar Þór í drulluspyrnu um árið
Einar Þór Gunnlaugsson sigraði Greifatorfæruna sem fór fram á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar í dag. Einar var jafnframt stigahæsti maður dagsins og hlýtur því titilinn Greifinn 2009. Leo Viðar Björnsson hafnaði í öðru sæti en Hafsteinn Þorvaldsson var í þriðja, en hnn velti bíl sínum hressilega eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi. Björgvin Ólafsson hjá Bílaklúbbi Akureyrar segir keppnirnar hafa gengið vel. “Þetta hefur gengið framar vonum og aðsóknin var frábær. Það var mikið um veltur og þessvegna drógst dagskráin en þetta var samt rosalega gaman,” sagði Björgvin í samtali við Akureyri.net síðdegis.
Í flokki götubíla var Steingrímur Bjarnason í fyrsta sæti, Haukur Þorvaldsson í öðru og Hlynur B. Sigurðsson í þriðja.
Horfa á frétt »
Skrifað 26. maí 2009 klukkan 11:53 | Ingimar Björn | Fréttir, VefTV | 2 athugasemdir | 
Þessi mynd var tekin rétt eftir að torgið var þökulagt síðasta sumar. Myndin er tekin af síðu hópsins.
Ört vaxandi fjöldi notenda á Facebook samskiptavefnum hefur nú gengið til liðs við hóp á síðunni sem skorar á bæjaryfirvöld, eða bara hvern sem er, að þökuleggja Ráðhústorgið á ný í sumar. Hópurinn telur þegar þetta er skrifað rúmlega 3100 manns, eða tæplega nítján prósent bæjarbúa.
Hermann Jón Tómasson, formaður bæjarráðs, segir bæjaryfirvöld hafa tekið vel í þökulagninguna í fyrra og þau séu að skoða málið með jákvæðu hugarfari. Þá vill Sigurður Guðmundsson, verslunareigandi sem bar ábyrgð á verkinu síðasta sumar, sjá bæjarbúa taka höndum saman og grænka torgið í sameiginlegu átaki.
Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstýra er sammála þessu, en hún skrifar á “vegg” hópsins í gærkvöld: ” Það er best að gera þetta í lok júní/ byrjun júlí og gaman væri ef að við íbúarnir tækjum okkur saman einn laugardag og sæjum um framkvæmdina. Bærinn kæmi með þökur og sumarblóm en við gerðum þetta sjálf.” Það er því von á grænu torgi í sumar, í krafti samvinnu bæjarbúa.
Horfa á frétt »
Skrifað 18. maí 2009 klukkan 03:57 | Örlygur Hnefill | Fréttir, VefTV | 
Rúmlega 400 nemendur komu fram á sviði Samkomuhússins um helgina. Mynd/Örlygur Hnefill
Nokkuð líklegt má telja að fjöldamet hafi verið slegin í Samkomuhúsinu á Akureyri um helgina þegar vorsýningar Point dans stúdíós fóru fram. Alls komu rúmlega 400 nemendur fram á sviði gamla leikhússins og þá voru þéttskipaðir bekkir á öllum sex sýningum helgarinnar og raunar var aðsóknin það mikil að margir máttu standa.
Sýningin var öll hin glæsilegasta og góður vitnisburður þess starfs sem unnið hefur verið í dansskólanum í vetur. Sigyn Blöndal, stofnandi skólans segir undirbúning sýningarinnar hafa staðið frá því í desember á síðasta ári en nemendurnir lögðu undir sig leikhúsið um síðustu helgi og voru stífar æfingar alla vikuna. Myndir frá fyrri sýningardeginum eru komnar á Akureyri.net og eru myndir frá seinni sýningardeginum væntanlegar hingað í kvöld.
Horfa á frétt »
Skrifað 12. maí 2009 klukkan 19:22 | Örlygur Hnefill | Fréttir, VefTV | 
Ráðherrar funda með blaðamönnum í Sólborg. Mynd/Auðunn
Samræmd sóknaráætlun fyrir landsbyggðina var meðal þess sem ríkisstjórnin ræddi á fundi sínum á Akureyri í dag. Fundurinn á Akureyri var í senn fyrsti starfsfundur nýrrar ríkisstjórnar og fyrsti fundur ríkisstjórnar utan Reykjavíkur ef frá eru taldir hátíðarfundir á Þingvöllum. Að fundi loknum ræddu ráðherrar við blaðamenn á fundi í Háskólanum á Akureyri. Þar sagðist Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gera sér vonir um að koma lögum um persónukjör, þjóðaratkvæðagreiðslur og ráðgefandi stjórnlagaþing í gegnum þingið.
“Þetta lá þannig á síðasta þingi að fjórir af fimm flokkum voru sammála um að koma á stjórnlagaþingi. Sjálfstæðisflokkurinn var einn á móti því,” segir forsætisráðherra.
Horfa á frétt »
Skrifað 09. maí 2009 klukkan 10:39 | Örlygur Hnefill | Fréttir, Menning, Skólar, VefTV | 
Verk eins útskriftarnema við Myndlistaskólann.
Þrítugasta og fimmta starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur með veglegri sýningu á verkum nemenda í húsnæði skólans efst í Listagilinu nú um helgina. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur hafa verið að fást við í myndlist og hönnun á þessu skólaári.
Fimmtíu og fjórir nemendur stunduðu nám í dagdeildum skólans í ár og af þeim munu þrjátíu og tveir brautskrást frá skólanum að þessu sinni - átta grafískir hönnuðir og níu myndlistarmenn eftir þriggja ára sérhæft nám. Sextán ljúka alhliða undirbúningsnámi í fornámsdeild. Einnig verða sýnd verk eftir nemendur sem voru á barna- og unglinganámskeiðum á vorönn. Sýningin verður opin kl. 14:00 til 18:00 bæði á laugardag og sunnudag.
Horfa á frétt »