Skólar

Eining-Iðja færir Háskólanum á Akureyri vegleg ritsöfn að gjöf

Skrifað 23. september 2009 klukkan 00:40 | | Fréttir, Háskólinn, Skólar |

Háskólinn á AkureyriÞorsteinn E. Arnórsson, þjónustufulltrúi hjá Einingu-Iðju, færði bókasafni Háskólans á Akureyri veglega bókagjöf á dögunum. Um var að ræða tvö ritsöfn sem félagið eignaðist fyrir nokkrum árum, en ákveðið var að færa háskólanum ritsöfnin til að þau nýtist sem flestum.

Annað ritsafnið heitir Verdenshistorien og er í 16 bindum útgefnum á árunum 1965 til 1968. Hitt ritsafnið heitir Salmonsens Konversations Leksion og er í 26 bindum útgefnum á árunum 1915 til 1930. Það var Astrid M. Magnúsdóttir, forstöðumaður upplýsingasviðs háskólans, sem veitti bókunum viðtöku fyrir hönd skólans.


Vel mannaðir grunnskólar á Akureyri

Skrifað 27. ágúst 2009 klukkan 18:10 | | Fréttir, Grunnskólar |
Naustaskóli á Akureyri. Mynd/Hörður Geirsson.

Vel hefur gengið að manna grunnskólana á Akureyri fyrir veturinn. Í fréttablaðinu Skóla akur sem kom út í dag segir að ekki hafi verið óalgengt að sex umsóknir bærust um hverja stöðu, og er hlutfall fagmenntaðra starfsmanna nálægt 100 prósentum.

Nú á mánudaginn hófu 2.586 nemendur skólastarf í grunnskólum bæjarins. Þar af eru 264 nemendur í fyrsta bekk að stíga sín fyrstu skref á skólabekk.

Ekki hefur þurft að fækka starfsmönnum í skólum bæjarins, þrátt fyrir efnahagsástandið. Stöðugildafjöldi starfsmanna helst óbreyttur, en um 400 starfsmenn í 378 stöðugildum starfa í grunnskólunum. Þó hefur þurft að grípa til margvíslegra aðgerða til að lækka rekstrarkostnað skólanna. Þrengra er um aðföng en áður og einnig hefur þurft að hætta ýmsum hliðarverkefnum. Sem dæmi má nefna að frístundir skólanna munu loka klukkan 16.15 í vetur, en ekki 17.15 eins og áður var.

Mynd:
Naustaskóli á Akureyri (Hörður Geirsson)


Enn unnið að framkvæmdum við bílastæði HA

Skrifað 24. ágúst 2009 klukkan 22:39 | | Fréttir, Háskólinn, Skólar |

Bílastæði Háskólans á AkureyriUnnið hefur verið að framkvæmdum við bílastæði Háskólans á Akureyri að Sólborg í sumar. Samkvæmt áætlun átti að ljúka framkvæmdum fyrir upphaf skólaársins en vegna erfiðs jarðvegs á svæðinu náðist það ekki.
Verkið reyndist umfangsmeira en gert var ráð fyrir í fyrstu þar sem jarðvegur var erfiðari en búist var við.

Sökum þessa skapast ákveðin vandræði hvað bílastæði varðar og hefur starfsfólk háskólans ekki farið varhluta af því í sumar. Þeim óskum er því beint til bæði starfsfólks og nemenda sem fara að streyma í háskólann á næstu dögum að nýta sér aðra fararkosti en einkabíla sem framast er unnt. Á meðan veður haldast góð er hægt að hjóla eða ganga og þá er vert að minna á að frítt er í strætó á Akureyri.

Forsvarsmenn HA biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að skapast af þessu ástandi en reiknað er með því að hluti af nýju bílaplani verði tekin í notkun í lok ágúst en framkvæmdunum við planið líkur ekki fyrr en síðar í haust.


Styrkjunum ætlað að efla málmsmíðakennslu til muna

Skrifað 16. júní 2009 klukkan 11:32 | | Fréttir, Skólar |
Stjórnendur VMA taka við styrkjunum

Stjórnendur VMA taka við styrkjunum

Í tilefni af 25 ára afmæli Verkmenntaskólans á dögunum komu góðir gestir færandi hendi. Blikksmiðjurnar á Akureyri gáfu skólanum saman hálfa milljón til tækjakaupa auk þess sem eigendur þeirra færðu skólanum jafnháa upphæð frá Félagi blikksmiðjueigenda og Samtökum iðnaðarins. Verður fénu varið til kaupa á búnaði í þágu náms í blikksmíði en tækjabúnaðurinn sem notaður hefur verið til þessa erorðinn gamall og úr sér genginn. Þá hefur Félag málmiðnaðarmanna jafnframt gefið skólanum 850 þúsund krónur til tækjakaupa á málmsmíðabrautinni. Þá fékk skólinn tíu milljónir króna á fjárlögum í þágu þessa verkefnis síðastliðinn vetur.

Málmsmiðabrautin var fyrst til þess að flytja í nýtt húsnæði skólans á Eyrarlandsholtinu og var brautin í upphafi búin gömlum vélum sem teknar voru með úr Iðnskólanum auk þess sem keyptur var notaður búnaður frá Danmörku. Ekki hefur náðst að endurnýja nema hluta hans á síðustu árum – en að sögn skólastjórnenda munu afmælisgjafirnar styrkja deildina mikið.


Menntaskólinn brautskráir 143 stúdenta

Skrifað 15. júní 2009 klukkan 14:32 | | Fréttir, Skólar |
Brautskráning stúdenta frá MA er löngu orðin mikilvægur hluti af þjóðhátíðardegi akureyringa. Mynd/Ingimar Björn

Brautskráning stúdenta frá MA er löngu orðin mikilvægur hluti af þjóðhátíðardegi akureyringa. Mynd/Ingimar Björn

Þeir verða eflaust stoltir, stúdentarnir sem munu marsera í gegnum bæinn á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Menntaskólanum á Akureyri verður slitið við hátíðlega athöfn í Íþróttahöllinni klukkan tíu þann sama dag. Við athöfnina verða brautskráðir 143 stúdentar: 71 af félagsfræðibraut, 24 af málabraut, 48 af náttúrufræðibraut, þar af 16 af eðlisfræðilínu og einn jafnframt af tónlistarkjörsviði listnámsbrautar. Að þessu sinni verður enn fremur brautskráður fyrsti hópur nemenda sem komu í skólann á hraðlínu almennrar brautar, rakleitt úr 9. bekk grunnskóla, harðsnúið lið sem hefur sýnt afar góðan árangur í námi og skólastarfi.

Opið hús verður í Menntaskólanum á Akureyri frá hádegi fram til klukkan 15.30. Þar verða á borðum léttar veitingar og sýnishorn af verkefnum nemenda verða í kennslustofum á Hólum og víðar. Hundruð manna koma á Opið hús 17. júní ár hvert, meðal annars gamlir stúdentar sem koma og ylja sér við að rifja upp sögur frá skólaárunum í MA.

Í tengslum við skólaslit Menntaskólans á Akureyri koma hundruð gamalla nemenda í heimsókn til Akureyrar, koma í gamla skólann sinn, fara margvíslegar ferðir um héraðið og nágrennið og fagna saman stúdentsafmælum á MA-hátíðinni í Íþróttahöllinni að kvöldi 16. júní.

Að kvöldi 17. júní verður stúdentahátíð í Íþróttahöllinni, þar sem saman koma nýstúdentar, ættingjar þeirra og vinir auk kennara og starfsmanna. Þarna verða að þessu sinni á tólfta hundrað manna í hátíðarkvöldverði og skemmtidagskrá nýstúdenta. Þeir munu ganga um bæinn fylktu liði um miðnættið, en síðan verður dansleikur þeirra í Höllinni fram á nótt.


289 kandídatar brautskráðir frá HA í dag

Skrifað 13. júní 2009 klukkan 16:07 | | Fréttir, Skólar |
Hátt í þrjúhundruð kandídatar brautskráðust frá Háskólanum á Akureyri í dag.

Hátt í þrjúhundruð kandídatar brautskráðust frá Háskólanum á Akureyri í dag.

Háskólinn á Akureyri brautskráði í dag 289 kandídata á Háskólahátíð sem haldin var í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag. Flestir brautskráður af félags- og hugvísindadeild, eða 156. Þá brautskráðust 69 nemendur af viðskipta- og raunvísindadeild, og 64 af heilbrigðisdeild. Í fyrsta sinn voru svo brautskráðir fimm kandídatar með MS gráðu í viðskiptafræði. Konur eru í miklum meirihluta hópsins, eða 226 á móti 63 körlum. Forseti Íslands var viðstaddur brautskráningu í ár og afhenti styrki úr Háskólasjóði KEA í móttöku í Háskólanum á Akureyri að lokinni brautskráningu.

Brautskráningin í dag var síðasta brautskráning Þorsteins Gunnarssonar, rektors, en hann lætur af störfum um næstu mánaðarmót. Þorsteinn sagðist í ræðu sinni telja þrótt og uppbyggingu einkenna starf skólans þrátt fyrir erfiða tíma. Þá varaði rektor við þeim hugmyndum sem uppi eru um fækkun háskóla, og að aðeins yrðu tveir háskólar á landinu sem hefðu höfuðstöðvar sínar í Reykjavík: "Með því yrði öll sjálfstæð háskólastarfsemi á landsbyggðinni lögð af en komið yrði á fót óskilgreindum útibúum sem ættu allt undir miðstýrðu valdi höfuðstöðvanna í Reykjavík. Ég dreg í efa ágæti slíkrar útibúastarfsemi á landsbyggðinni."  Þorsteinn sagðist þó vel getað hugsað sér að háskólum yrði fækkað, þannig að tveir væru með höfuðstöðvar í Reykjavík, en einn á Akureyri.

Ræða Þorsteins í heild sinni verður aðgengileg hér á vefnum fljótlega.


Aðför að háskólamenntun á landsbyggðinni segir rektor

Skrifað 27. maí 2009 klukkan 17:50 | | Fréttir, Skólar |
Þorsteinn Gunnarsson háskólarektor segir tillögurnar of höfuðborgarmiðaðar

Þorsteinn Gunnarsson háskólarektor segir tillögurnar of höfuðborgarmiðaðar

Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri segir hugmyndir vinnuhóps um sameiningu háskóla aðför að háskólamenntun á landsbyggðinni. Tillögurnar voru ræddar á fundi háskólaráðs HA í dag. "Það sem við setjum helst fyrir okkur er að þessar tillögur eru allt of höfuðborgarmiðaðar. Í raun og veru er verið að tala um að leggja niður sjálfstæða háskóla á landsbyggðinni og setja upp fjóra háskóla á höfuðborgarsvæðinu," sagði Þorsteinn í samtali við Akureyri.net síðdegis. Vinnuhópurinn starfaði á vegum Menntamálaráðuneytisins.

Í fréttatilkynningu frá Háskólaráði segir að upplýstri umræðu um vísindi og háskólamál sé fagnað og að ráðið taki undir ýmis sjónarmið sem koma fram í þessum úttektum, sérstaklega hvað varðar aukna samvinnu milli háskóla. Ráðið er þó mótfallið hugmyndum um að Háskólinn á Akureyri verði gerður að útibúi frá háskóla með höfuðstöðvar í Reykjavík og telur skorta fullnægjandi rökstuðning fyrir slíkum hugleiðingum.


Keppt í stígvélakasti og hreystigripi á Þelamerkurleikunum

Skrifað 27. maí 2009 klukkan 16:08 | | Fréttir, Skólar |
Sigurvegararnir í stígvélakastinu

Sigurvegararnir í stígvélakastinu

Nemendur Þelamerkurskóla héldu í vikunni fyrstu Þelamerkurleikana, en stefnt er að því að gera þá að árvissum viðburði. Leikarnir tókust afskaplega vel og var keppt í fjölda greina. Mikið og öflugt íþróttastarf hefur verið í skólanum, en skemmst er að minnast þess þegar skólinn náði í úrslit Skólahreystis í síðasta mánuði, eftir keppni við rúmlega eitthundrað skóla víðsvegar að af landinu.

Meðal keppnisgreina á þessum fyrstu Þelamerkurleikum voru hreystigripi, reipitogi, hreystitogi, boltakasti, langstökki, stígvélakasti, olsen-olsen og stinger. Eftir skemmtilega útivist voru nemendur svo kallaðir á sal síðdegis þar sem verðlaunaafhending fór fram.


Furðuverur fylla fjörðinn

Skrifað 20. maí 2009 klukkan 15:39 | | Framhaldsskólar, Fréttir, Skólar |
Elvis sjálfur reis upp frá dauðum í fjölriti á Akureyri í dag. Mynd/Ingimar

Elvis sjálfur reis upp frá dauðum í fjölriti á Akureyri í dag. Mynd/Ingimar

Þegar lofthitinn í bænum fer smá saman að fikra sig upp í tveggja stafa tölur streyma bæjarbúar út á göturnar. Veðurstofan spáir reyndar rigningu á morgun og skýjuðu næstu daga, en sunnudagurinn ætti að verða sólríkur og góður.

Í dag leyndust á meðal virðulegra borgara Elvis-eftirhermur, sæðisfrumur og ýmis furðudýr. Þetta eru að sjálfsögðu stúdentsefni Menntaskólans á Akureyri sem nú eru að dimmitera.

Ljósmyndari akureyri.net rakst á þennan vagn fullan af Elvis-um á ferð sinni um bæinn. Þessir kátu krakkar virtust njóta veðurblíðunar til hins ítrasta, rúntuðu dregin í dráttarvél um bæinn, kættu bæjarbúa með tónlist eftirstríðsárana, og kvöddu um leiðmenntaskólaárin, kennarana og æskuna með stæl.

Þessi tók tvist. Mynd/Ingimar

Þessi tók tvist.

Stúdentsefnin nutu dagsins!

Stúdentsefnin nutu dagsins!

4.X veifar gestum Glerártorgs. Mynd/Ingimar

4.X veifar gestum Glerártorgs.

Elvis vakti athygli vegfarenda á Glerárgötu.

Elvis vakti athygli vegfarenda á Glerárgötu.


Góður árangur Verkmenntaskólans í frumkvöðlakeppni

Skrifað 09. maí 2009 klukkan 11:18 | | Fréttir, Skólar |
Nemendur VMA sigruðu keppnina um besta fyrirtækið

Nemendur VMA sigruðu keppnina um besta fyrirtækið

Fyrir skemmstu héldu námsmannafyrirtækin Losti og Skellur til Reykjavíkur að keppa við önnur námsmannafyrirtæki um besta fyrirtækið 2009.  Keppnin var í ár haldin í húsnæði Háskólans í Reykjavík og í stuttu máli, þá vann fyrirtækið Skellur tvenn verðlaun; besta viðskiptaáætlunin og svo aðalverðlaunin, besta fyrirtækið 2009.  Skellur framleiddi nú í vetur Gaurinn sem er nokkurskonar klósettsetu dempari og má með sanni segja að hann hafi slegið í gegn.  Losti framleiddi gosdrykkinn Losta sem líka hefur vakið verðskuldaða athygli.

Stjórnendur Skells munu nú í apríllok og í maíbyrjun fara í þann fasa að koma raunverulegu fyrirtæki á koppinn, sem og að undirbúa sig að fara til Hollands í sumar þar sem þau munu keppa í Evrópukeppni ungra frumkvöðla. Vefur VMA greindi frá.


Nemendur Myndlistaskólans sýna afrakstur vetrarins

Skrifað 09. maí 2009 klukkan 10:39 | | Fréttir, Menning, Skólar, VefTV |
Verk eins útskriftarnema við Myndlistaskólann.

Verk eins útskriftarnema við Myndlistaskólann.

Þrítugasta og fimmta starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur með veglegri sýningu á verkum nemenda í húsnæði skólans efst í Listagilinu nú um helgina. Sýnd verða verk  nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Þar gefur  að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur hafa verið að fást við í  myndlist og hönnun á þessu skólaári.

Fimmtíu og fjórir nemendur stunduðu nám í dagdeildum skólans í ár og af  þeim munu þrjátíu og tveir brautskrást frá skólanum að þessu sinni -  átta grafískir hönnuðir og níu myndlistarmenn eftir þriggja ára  sérhæft nám. Sextán ljúka alhliða undirbúningsnámi í fornámsdeild. Einnig verða sýnd verk eftir nemendur sem voru á barna- og  unglinganámskeiðum á vorönn. Sýningin verður opin kl. 14:00  til 18:00 bæði á laugardag og sunnudag.

Horfa á frétt »


Frábær árangur Þelamerkurskóla í Skólahreysti

Skrifað 30. apríl 2009 klukkan 22:29 | | Fréttir, Menning, Skólar |
Steinunn Davíðsdóttir, Þórdís Björk Gísladóttir, Daníel Freyr Sigmarsson og Björgvin Helgason skipuðu lið Þelamerkurskóla.

Steinunn Davíðsdóttir, Þórdís Björk Gísladóttir, Daníel Freyr Sigmarsson og Björgvin Helgason skipuðu lið Þelamerkurskóla.

Þelamerkurskóli náði í kvöld 8. sæti í úrslitakeppni Skólahreystis, en alls hófu 110 skólar keppni í ár. Árangur Þelamerkurskóla er því mikill og ekki minni þegar litið er til stærðar skólans. Keppnin fór fram í Laugardalshöll í Reykjavík og var sýnd í beinni útsendingu í Sjónvarpinu.

Lið Þelamerkur skipuðu Steinunn Davíðsdóttir, Þórdís Björk Gísladóttir, Daníel Freyr Sigmarsson og Björgvin Helgason. Þórdís Björk náði 2. sæti í hreystigreip og gerði 52 armbeygjur sem er gríðarlega góður árangur. Þá stóð Daníel Freyr sig mjög vel í upplyftum og upphífingum, en hann gerði 35 upplyftur og 31 upphífingu og varð í 4-5 sæti í þeim greinum. Blaðamaður Akureyri.net náði tali af Ingileif Ástvaldsdóttur skólastjóra í miðjum fögnuðinum og sagði hún gríðarlega gleði ríkja í hópnum. Stór hópur nemenda fylgdi keppendunum til Reykjavíkur og eru þau væntanleg aftur norður í fyrramálið. Sveitarstjórnir Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar studdu dyggilega við bakið á skólanum svo unnt væri að senda stuðningslið með á keppnina. Akureyri.net óskar krökkunum í Þelamerkurskóla til hamingju með árangurinn í kvöld.


Axel Ingi Árnason nýr Inspector scholae

Skrifað 30. apríl 2009 klukkan 10:57 | | Fréttir, Skólar | 1 athugasemd |
Ný stjórn Hugins í Kvosinni í morgun. Mynd/SvP

Ný stjórn Hugins í Kvosinni í morgun. Mynd/SvP

Ný stjórn Hugins, skólafélags Menntaskólans á Akureyri, tók við í morgun en kosið var í gær. Nýr formaður Hugins, Inspector scholae er Axel Ingi Árnason, nemandi í þriðja bekk. Axel hefur verið áberandi í félagslífi skólans undanfarin ár og sett svip sinn á tónlistarlíf og leiklistarstarf menntskælinga. Í vetur lék hann eitt af aðalhlutverkunum í uppfærslu nemenda á Kabarett. Þá var hann einn vetur skiptinemi í Dóminíska lýðveldinu í Karíbahafi. Nýr varaformaður var kjörinn Einar Tryggvi Leifsson og Bjarki Kristjánsson er nýr gjaldkeri Hugins. Þá var Alma Rún Vignisdóttir kjörinn ritari, Huginn Ragnarsson var kjörinn skemmtanastjóri, Guðmundur Friðbjarnarson er nýr meðstjórnandi og Eyrún Inga Jóhannsdóttir er forseti fjáröflunarnefndar. Loks var Gísli Björgvin Gíslason kjörinn forseti hagsmunaráðs nemenda Menntaskólans á Akureyri.
Nánar »


Nýir þingmenn Norðausturkjördæmis

Skrifað 26. apríl 2009 klukkan 10:48 | | Fréttir, Menning, Pólitík, Skólar |

Fjórir nýir þingmenn taka sæti á Alþingi fyrir Norðausturkjördæmi. Tryggvi Þór Herbertsson prófessor er nýr þingmaður Sjálfstæðisflokks, en hann ýtti Arnbjörgu Sveinsdóttur niður um sæti í prófkjöri. Sigmundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir eru ný inni af lista Samfylkingarinnar. Sigmundur á að baki langan feril sem frétta- og blaðamaður og hefur einnig starfað sem rithöfundur, en Jónína Rós kennir við Menntaskólann á Egilstöðum. Þá kemur Björn Valur Gíslason skipstjóri inn sem nýr þingmaður af lista Vinstri grænna.

Nánar »


Sumarnám í boði við Háskólann á Akureyri

Skrifað 17. apríl 2009 klukkan 20:08 | | Fréttir, Skólar |

Til að koma til móts við óskir nemenda um sumarnám er Háskólinn á Akureyri reiðubúinn að bjóða upp á sumarnámskeið í viðskiptafræði, raunvísindum, félagsvísindum og kennaranámi. Áætlun um sumarnám var kynnt fyrir háskólaráði í dag og lýsti ráðið yfir sérstakri ánægju með hana. Viðræður standa yfir við menntamálaráðuneyti um fjármögnun námsins.

Alls verða 32 námskeið í boði í sumar, nemendur geta þá tekið próf í samtals 150 námskeiðum í ágúst en í sumum tilvikum þarf að sitja námskeið aftur.



Skólar