
Brautskráning stúdenta frá MA er löngu orðin mikilvægur hluti af þjóðhátíðardegi akureyringa. Mynd/Ingimar Björn
Þeir verða eflaust stoltir, stúdentarnir sem munu marsera í gegnum bæinn á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Menntaskólanum á Akureyri verður slitið við hátíðlega athöfn í Íþróttahöllinni klukkan tíu þann sama dag. Við athöfnina verða brautskráðir 143 stúdentar: 71 af félagsfræðibraut, 24 af málabraut, 48 af náttúrufræðibraut, þar af 16 af eðlisfræðilínu og einn jafnframt af tónlistarkjörsviði listnámsbrautar. Að þessu sinni verður enn fremur brautskráður fyrsti hópur nemenda sem komu í skólann á hraðlínu almennrar brautar, rakleitt úr 9. bekk grunnskóla, harðsnúið lið sem hefur sýnt afar góðan árangur í námi og skólastarfi.
Opið hús verður í Menntaskólanum á Akureyri frá hádegi fram til klukkan 15.30. Þar verða á borðum léttar veitingar og sýnishorn af verkefnum nemenda verða í kennslustofum á Hólum og víðar. Hundruð manna koma á Opið hús 17. júní ár hvert, meðal annars gamlir stúdentar sem koma og ylja sér við að rifja upp sögur frá skólaárunum í MA.
Í tengslum við skólaslit Menntaskólans á Akureyri koma hundruð gamalla nemenda í heimsókn til Akureyrar, koma í gamla skólann sinn, fara margvíslegar ferðir um héraðið og nágrennið og fagna saman stúdentsafmælum á MA-hátíðinni í Íþróttahöllinni að kvöldi 16. júní.
Að kvöldi 17. júní verður stúdentahátíð í Íþróttahöllinni, þar sem saman koma nýstúdentar, ættingjar þeirra og vinir auk kennara og starfsmanna. Þarna verða að þessu sinni á tólfta hundrað manna í hátíðarkvöldverði og skemmtidagskrá nýstúdenta. Þeir munu ganga um bæinn fylktu liði um miðnættið, en síðan verður dansleikur þeirra í Höllinni fram á nótt.