Leikskólar

Lífsleikni í leikskóla

Skrifað 13. nóvember 2006 klukkan 10:17 | | Leikskólar |

Þrír leikskólar á Akureyri, Krógaból, Síðusel og Sunnuból hafa unnið saman að þriggja ára þróunarverkefni undir yfirskriftinni „Lífsleikni í leikskóla“ og er kennsluefni tengt verkefninu nú komið út. Ákveðið hefur verið að innleiða lífsleiknikennslu í skólana og vinna við kennsluleiðbeiningar.

Fjölmargir aðilar hafa komið að útgáfu kennsluefnisins, auk þriggja verkefnisstjóra sem verkinu stýrðu. Má þar nefna að fenginn var grafískur hönnuður, Gígja Rut Ívarsdóttir, sem sá um útlit efnisins. Björn Ingólfsson á Grenivík sá um prófarkalestur, handbrúða sem fylgir efninu er hönnuð af Halldóru Sævarsdóttur, í kennarahandbók, sem er hluti af efninu, skrifuðu kafla Kristján Kristjánsson heimspekingur, Sigríður Síta Pétursdóttir sérfræðingur á RHA, Jakobína Áskelsdóttir leikskólastjóti og Sonja Kro, einn þriggja verkefnisisstjóranna auk þess sem hún ritstýrði verkinu. Prentstofan Stell sá um prentun efnisins. Kennsluefnið er nú til sölu í leikskólunum Krógabóli og Síðuseli.

www.akureyri.is

 

 


Jötunheimur í KB-banka

Skrifað 13. október 2006 klukkan 07:53 | | Leikskólar |

Við rákumst á eftirfarandi frásögn og myndir á heimasíðu deildarinnar Jötunheims á leikskólanum Iðavelli:

"Jóhanna og mamma hennar, hún Hafdís, buðu okkur í heimsókn í KB banka en þar vinnur Hafdís. Við mættum og fengum að sjá vélar sem telja peninga og krakkarnir fengu allir að hjálpa til við að setja smápeninga í talningavél. Svo sáum við líka vél sem taldi seðla. Við fengum okkur vatnssopa áður en við mættum í myndatöku hjá Gesti. Svo vorum við leyst út með gjöfum. Allir krakkarnir fengu endurskinsborða sem hægt er að skella á handlegginn og blöðru. Kennararnir fengu lyklakippu og deildin fékk DVD mynddisk og tónlistardisk en líka spilastokk.

Við þökkum kærlega fyrir sérlega góðar móttökur og skemmtilegan dag."

Fleiri myndir frá heimsókninni og ýmsan annan fróðleik má finna á heimasíðu Iðavallar, www.idavollur.akureyri.is


Iðavöllur: Ævintýraferð í Glerárhverfi

Skrifað 31. ágúst 2006 klukkan 09:36 | | Leikskólar |

Börnin á leikskólanum Iðavelli eru dugleg að fara í gönguferðir og skoða bæinn sinn. Nýlega fóru elstu börnin í "óvissuferð" með strætó og lentu í Síðuhverfi, þar sem þau fundu ágætan leikvöll, gengu svo um hverfið og fóru að því loknu í heimsókn í leikskólann Síðusel. Þar var vel tekið á móti börnunum, að því er fram kemur á heimsíðu Jötunheims, deildarinnar þeirra á Iðavelli. Þau snæddu nestið sitt á Síðuseli, lásu tvær sögur, fullorðna fólkið fékk kaffi og svo var haldið aftur af stað.

Börnin fundu annan róluvöll og léku sér þar um stund, en síðan héldu þau niður með Glerá að norðanverðu eftir nýjum og góðum göngustíg og fundu þar alls kyns athyglisverð blóm og plöntur, m.a. brennisóley, gullmuru, eyrarrós, smára og umfeðming. Að þessu loknu var haldið aftur heim á Iðavöll. Nokkuð kalt var í veðri þennan dag og þótt ferðalagið hafi allt verið hið skemmtilegasta voru margir fegnir þegar heim á Iðavöll var komið.

Myndin er fengin af heimasíðu deildarinnar Jötunheims á Iðavelli og þar má sjá fleiri myndir úr þessari ferð og fleirum, sem farnar hafa verið á undanförnum vikum: www.idavollur.akureyri.is/jotunheimur/starfid.htm


Leikskólar komnir í fullan gang: Börn og dýr búa sig undir haustverkin

Skrifað 16. ágúst 2006 klukkan 09:09 | | Leikskólar |

Leikskólar eru komnir af stað aftur að loknum sumarleyfum og tímabundnum lokunum yfir hásumarið. Meðal þeirra er Smábær í Hrísey, en þar er allt komið í fullan gang eftir fjögurra vikna sumarfrí. Meðal þeirra sem njóta góðs af vistinni í Smábæ er Kalli nokkur, sem er kanína og var í vist í sumar meðan starfsemi leikskólans lá niðri. Þessa mynd af honum fengum við lánaða á heimasíðu Smábæjar. Þar kemur fram að nú eru haustverkin í nánd og að mörgu að hyggja. Taka þarf upp úr kartöflugarðinum og svo byrjar starfið í Smábæ af krafti enda fullt hús af börnum sem þyrstir í leik og starf. Nú er að fjölga börnum í leikskólanum og verða þau 10 áður en langt um líður, segir á heimasíðu Smábæjar, http://smabaer.akureyri.is/


Vatnsveður á Tröllaborgum!

Skrifað 25. júlí 2006 klukkan 08:46 | | Leikskólar |

Einn morguninn í síðustu viku rigndi býsna mikið. Starfsfólki og börnum á leikskólanum Tröllaborgum fannst því kjörið tækifæri að setja úðarann út og sulla aðeins meira. Það var alveg rosalega gaman hjá þeim og þau blotnuðu MJÖG mikið, segir í frétt á heimasíðu Tröllaborga þar sem skoða má fleiri myndir frá sullumbullinu og drullumsullinu: http://trollaborgir.akureyri.is/


Viðburðarík gönguferð hjá Dvergadeild

Skrifað 04. júlí 2006 klukkan 09:29 | | Leikskólar |

Á föstudag fóru börnin á Dvergadeild leikskólans Síðusels í stutta gönguferð. Þar fengu þau meðal annars að hoppa og skoppa á trampólíni og fengu svo snakk áður en haldið var aftur að Síðuseli. Þrír máttu hoppa í einu og biðu hinir þolinmóðir á meðan, en ekki leist þó öllum á blikuna og töldu sig öruggari í faðmi hennar Ástu leikskólakennara, eins og sjá má á þessari mynd, sem fengin er á heimasíðu Síðusels: www.sidusel.akureyri.is. Þar má sjá fleiri myndir úr gönguferðinni auk fjölmargra mynda af öðrum viðburðum á leikskólanum að undanförnu.


Gamlir bátar og geitungar

Skrifað 28. júní 2006 klukkan 09:27 | | Leikskólar |

Fyrr í mánuðinum fóru börn af leikskólanum Kiðagili í strætóferð niður í bæ. Þau fóru að skoða bátana Húna II og Súlur og var þá boðið að fara um borð í Húna II og skoða allt að innan. Á leiðinni heim í strætisvagninum sátu börnin aftast með kennurum sínum og tók þá einhver eftir að það var geitungur í glugganum. Og hann var sko ekkert lítill! Ó, nei. Risastór væri rétta orðið til að lýsa honum, segir í frétt á heimasíðu Kiðagils, www.kidagil.akureyri.is. Þar má einnig sjá mikinn fjölda skemmtilegra mynda úr þessu ferðalagi og börnunum í starfi og leik. 


Skrúðganga í tilefni þjóðhátíðardags

Skrifað 21. júní 2006 klukkan 04:27 | | Leikskólar |

Sennilega fagna engir þjóðhátíðardeginum, 17. júní, jafn innilega og börnin. Þessi mynd er af heimasíðu leikskólans Pálmholts, en þar á bæ brugðu menn á leik í tilefni þjóðhátíðardags, fóru í skrúðgöngu og gerðu eitt og annað skemmtilegt dagana kringum lýðveldisdaginn. Fleiri myndir má sjá á heimasíðu Pálmholts, www.palmholt.akureyri.is


Eyrarvöllur opinn í sumar

Skrifað 01. júní 2006 klukkan 09:04 | | Leikskólar |

Sumarið 2006 verður gæsluvöllurinn Eyrarvöllur við Eiðsvöll opinn frá 1. júní til 18. ágúst, að því er fram kemur í tilkynningu frá Akureyrarbæ. Opnunartími er frá kl. 13 – 16 alla virka daga og síminn er 462 6298.

Gæsluvöllurinn er ætlaður fyrir 2ja til 6 ára börn og er heimsóknargjald 200 kr. eða 2 gæslumiðar. Gæslumiðar eru seldir á gæsluvellinum.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Skóladeildar Akureyrarbæjar: http://skoladeild.akureyri.is


Vetur og vor á Kiðagili

Skrifað 30. maí 2006 klukkan 08:48 | | Leikskólar |

Veðrið á Íslandi er svo sannarlega óútreiknanlegt og afskaplega fljótt að breytast. Við rákumst á þessar myndir á heimasíðu leikskólans Kiðagils. Sú vetrarlega var tekin fyrir nokkrum dögum en sólskinsmyndin í gær. Þó að fullorðna fólkinu sé ekki alltaf skemmt yfir rysjóttri veðráttunni eru líklega fáir kátari yfir duttlungunum í veðrinu og fjölbreytni þess en einmitt börnin á leikskólunum. Fleiri myndir má sjá á síðu Kiðagils, www.kidagil.akureyri.is/


Dyggðatröll og andlitsmálning á Tröllaborgum

Skrifað 07. maí 2006 klukkan 11:36 | | Leikskólar |

Einn morguninn í síðustu viku var vinastund á leikskólanum Tröllaborgum. Voru allir búnir að fá andlitsmálingu, sem vildu, og það var skrautlegt fólk sem steig léttan dans í lok vinastundar, eftir að ,,dyggðatröll" höfðu komið í heimsókn og rætt við börnin um hófsemi og fleira. Myndin er fengin af heimasíðu Tröllaborga og þar má skoða fleiri myndir frá vinastundinni og af starfsemi leikskólans: http://trollaborgir.akureyri.is/


Smábær fær nýtt sófasett

Skrifað 29. mars 2006 klukkan 12:07 | | Leikskólar |

Í haust varð leikskólinn Smábær í Hrísey 20 ára og fékk rausnarlega peningagjöf frá útgerðinni Rifi. Var ákveðið að fjárfesta í sófasetti. Sófasettið var lengi á leiðinni en er nú loksins komið og mun nýtast leikskólanum vel í framtíðinni, að því er fram kemur á heimasíðu Smábæjar, www.smabaer.akureyri.is

Leikskólinn fékk einnig fleiri gjafir í tilefni 20 ára afmælisins. Árni Kristinsson (yngri) færði honum smíðasett sem hann var hættur að nota og fleira dót og séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir færði skólanum bók og kross sem grípa má til ef þörf er á, segir á heimasíðunni.

Þá hefur kvenfélagið ákveðið að færa leikskólanum rausnarlega peningagjöf í tilefni afmælisins.

Myndin af sófasettinu fína er fengin af heimasíðu Smábæjar.


Börnin á Síðuseli heimsækja íbúa Hlíðar

Skrifað 23. mars 2006 klukkan 08:40 | | Leikskólar |

Í vetur hefur annað árið í röð verið hafður sá háttur á að börn frá leikskólanum Síðuseli heimsækja íbúa og dagþjónustugesti á Öldrunarheimilinu Hlíð einu sinni í mánuði. Gamla fólkið endurgeldur síðan greiðann og heimsækir krakkana einu sinni yfir veturinn. Frá þessu er sagt á vef Akureyrarkaupstaðar, www.akureyri.is .
 
Þar kemur fram að fyrirmynd þessa verkefnis er að einhverju leyti sótt til hjúkrunarheimilsins Droplaugarstaða í Reykjavík en þar hafa heimsóknir leikskólabarna tíðkast um hríð. Þetta byggist á hugmyndafræði sem heitir á ensku „Eden Alternative“ og fjallar um það hvernig plöntur, dýr og börn færa gleði inn á hjúkrunarheimili og auka vellíðan íbúanna. Markmiðið með heimsóknunum er að brúa kynslóðabil, skapa ánægjulegar samverustundir og kynslóðirnar fræða hvor aðra um fyrri tíma og lífið eins og það er í dag.
 
Fimmtán börn koma í heimsókn á Hlíð einu sinni í mánuði. Viku áður er haldinn undirbúningsfundur og heimsóknin skipulögð í stórum dráttum. Það er farið með þulur, sungið, gert laufabrauð, skoðaðir gamlir hlutir og útskýrðir og margt fleira. Nú síðast var sáð fræjum sumarblóma og þar unnu margar misreyndar hendur létt verk, segir í fréttinni. Upphafsmenn þessara heimsókna og skipuleggjendur á Hlíð eru iðjuþjálfarnir Hulda Þórey Gísladóttir og Jóhanna Mjöll Björnsdóttir.

Nánar á www.akureyri.is


Hlíðaból á Grænni grein

Skrifað 16. mars 2006 klukkan 10:24 | | Leikskólar |

Krakkar frá leikskólanum Hlíðabóli hittu bæjarstjórann á Akureyri nú í vikunni og kynntu honum umhverfisverkefnið „Grænfánann,“ sem skólinn skráði sig fyrir hjá Landvernd haustið 2004. Þeir sem skrá sig í þetta verkefni verða fyrst um sinn „skólar á Grænni grein“ eða þangað til þeir telja sig hafa náð þeim markmiðum sem þeir hafa sett sér og geta þá sótt um Grænfánann. Á myndinni er umhverfisnefnd Hlíðabóls ásamt bæjarstjóranum.
 


Fjör í hreyfistund í Laugargötu

Skrifað 09. mars 2006 klukkan 12:20 | | Leikskólar |

Börnin á leikskólanum Krógabóli fóru í íþróttahúsið í Laugargötu í fyrradag og byrjuðu upphitun með því að hlaupa fram og aftur. Síðan var stöðvaþjálfun og börnin fóru á milli stöðva og spreyttu sig í alls kyns æfingum. Síðast var slökun þar sem allir lágu á stóru dýnunni og þar var þétt setinn bekkurinn. Meðfylgjandi mynd er af síðu Krógabóls, www.krogabol.akureyri.is og þar má sjá fleiri myndir úr þessari för.



Leikskólar