Leikskólar

Leikskólar á Akureyri fá Austurríska nema í heimsókn

Skrifað 24. september 2009 klukkan 15:09 | | Fréttir, Leikskólar, Skólar |

Leikskólakennaranemar frá AusturríkiUndanfarna daga hafa þrjátíu og þrír Austurrískir leiksskólakennaranemar unnið og numið við Akureyska leikskóla. Nemarnir hafa stundað nám sitt í 10 leikskólum hér í bænum. Hugmyndin að heimsókninni til Íslands kom til vegna þess að Íslenskur skiptinemi var við nám í skólanum þar sem þau nema í Austurríki.

Í Austurríki er leikskólakennaranám nám á framhaldsskólastigi og byrja nemendurnir fjórtán ára og útskrifast um tvítugt. Nemarnir hafa verið mjög ánægð með dvölina hér á landi og líkar vel við Akureyri. Þau segja góða reynslu að koma inn í skóla hér á landi þar sem þau þurfa að reiða sig á annað en talað tungumál til að eiga samskipti við börnin, en þar að auki hefðu börnin verið mjög fljót að kenna þeim að tala.


Sullumbull og drullumsull

Skrifað 16. júlí 2008 klukkan 09:58 | | Leikskólar |

Eitt það skemmtilegasta sem börn vita er að sulla. Á leikskólum bæjarins er mikið sullað þessa dagana, enda tilvalið þegar rignir. Á heimasíðu Krógabóls er að finna skemmtilegar myndir frá sulludegi þar á bæ og birtist hér ein þeirra. Sjá www.krogabol.akureyri.is


Hugrún ráðin

Skrifað 03. júní 2008 klukkan 09:36 | | Leikskólar |

Hugrún Sigmundsdóttir, settur leikskólastjóri, hefur verið ráðin leikskólastjóri á Pálmholti.


Fræðsludagur starfsfólks í leikskólum

Skrifað 28. mars 2008 klukkan 10:58 | | Leikskólar |

Fræðsludagur starfsfólks í leikskólum Akureyrarbæjar var haldinn þriðjudaginn 25. mars s.l. Stjórnandi var Ingunn H. Bjarnadóttir. Fræðsludagurinn hófst með ávarpi bæjarstjóra, Sigrúnar B. Jakobsdóttur.

Dagskrá fræðsludagsins fjallaði aðallega um stjórnkerfi bæjarins og skóladeildar og hóf Gunnar Gíslason fræðsluna um þessa þætti. Þá hélt Þórgnýr Dýrfjörð erindi sem hann nefndi Þjónusta og ímynd Akureyrarbæjar. Kynning á stoðþjónustu og fjölskyldudeild var í höndum Guðrúnar Sigurðardóttur og síðan kynning á Skólaþróunarsviði Háskólans á Akureyri, sem Anna E. Hreiðarsdóttir annaðist. Eftir hádegishlé var kynning á Alþjóðahúsinu á Norðurlandi, sem Anna Guðný Guðmundsdóttir flutti.

Fleiri erindi voru flutt en að þeim loknum var komið að kynningu á verkefni sem heitir Fiskurinn og notað er í mörgum leikskólum bæjarins. Heimir Bjarni Ingimarsson stjórnaði svo fjöldasöng.
Þá fjallaði Karl Guðmundsson um jafnréttis- og fjölskyldustefnu Akureyrabæjar en í lokin var hópavinna og samantekt á Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar. Gunnar Gíslason, fræðslustjóri sleit svo námskeiðinu.

Frá þessu er greint í Skóla-akri, rafrænu tímariti Skóladeildar Akureyrarkaupstaðar.


Og svo þegar kartaflan er sprottin…

Skrifað 29. september 2007 klukkan 11:05 | | Leikskólar |

Um miðjan mánuðinn tóku nemendur grunn- og leikskólans í Hrísey upp kartöflurnar í garðinum sínum. Þær voru hvorki stórar né margar en börnin stóðu sig með mikilli príði og gerðu sér að góðu kartöflurnar sem bornar voru fram með steikta fiskinum í hádeginu. Leikskólinn hefur sett skemmtilegar myndir frá þessum atburðum inn á síðu sína: http://smabaer.akureyri.is


Uppskeran bragðast þeim mun betur…

Skrifað 26. júlí 2007 klukkan 05:47 | | Leikskólar |

Börnin á leikskólanum Naustatjörn kíktu aðeins undir grösin í matjurtabeðinu sínu í gær og tóku upp nokkrar radísur (hreðkur) til að smakka með hádegismatnum. Hér eru Kolbrún María, Erna Rún og Katla Snædís með góðgætið, en myndin er fengin af heimasíðu Naustatjarnar, www.naustatjorn.akureyri.is


Útileikjadagur á Sunnubóli

Skrifað 05. júlí 2007 klukkan 05:37 | | Leikskólar |

Þann 27. júní var útileikjadagur hjá börnunum á Sunnubóli. Kisudeild setti upp þrautabraut sem börnin þurftu að glíma við, börnin þurftu að hoppa, ganga á jafnvægislá, klifra, hoppa á trampólinni, skríða í gegnum göng og fleira skemmtilegt. Myndin er tekin af vefsíðu Sunnubóls og þar má sjá fleiri skemmtilegar myndir frá útileikjadeginum: www.sunnubol.akureyri.is


Leikhólar 25 ára

Skrifað 11. júní 2007 klukkan 12:17 | | Leikskólar |

Á laugardaginn  var haldið uppá 25 ára afmæli leikskólans Leikhóla á Ólafsfirði. Öllum bæjarbúum var boðið til veislu í tilefni dagsins og tók Þorsteinn Ásgeirsson forseti bæjarstjórnar skóflustungu að stækkun á leikskólanum. Það var einnig sýning á verkum barnanna og ljósmyndasýning frá 25 ára sögu leikskólans. Boðið var uppá grillaðar pylsur og risa tertu sem listamaðurinn Tolli myndskreytti. Slökkviliðið með hoppukastala fyrir börnin. Kívanis klúbburinn Súlur gaf leikskólanum 40 þúsund krónur og foreldrafélag leikskólans gaf stórt færanlegt brúðuleikhús.


Krógaból verður heilsuleikskóli

Skrifað 06. júní 2007 klukkan 05:40 | | Leikskólar |

Föstudaginn 1. júní síðastliðinn hlaut leikskólinn Krógaból viðurkenningu sem heilsuleikskóli. Við hátíðlega athöfn afhenti Unnur Stefánsdóttir, leikskólastjóri Heilsuleikskólans Urðarhóls og formaður samtaka heilsuleikskóla, leikskólanum viðurkenninguna.

Krógaból hefur unnið að því frá 2005 að ná markmiðum heilsustefnunar með því t.d. að bæta mataræði leikskólans, minnka salt ,sykur og unna matvöru en jafnframt aukið grænmetis og ávaxtaneyslu. Hreyfing hefur verið aukin og fá öll börn leikskólans skipulagðar hreyfistundir að lámarki einu sinni í viku.

Krógaból er sjöundi leikskólinn sem hlýtur þessa viðurkenningu og sá fyrsti hér á Norðurlandi, segir í frétt á akureyri.is þaðan sem myndin er fengin.

 


Iðavallarrokk

Skrifað 25. maí 2007 klukkan 06:27 | | Leikskólar |

Börnin á leikskólanum Iðavelli héldu tónleika í sal Tónlistarskólans á Akureyri í dag. Sungu þau ýmsa söngva, þjóðlög og dægurlög, við mikla hrifningu gesta.

Geisladiskur með lögum barnanna, Iðavallarrokk, var til sölu á staðnum og mun ágóðinn renna til kaupa á nýju hljóðkerfi fyrir leikskólann.

Frá þessu er greint á www.akureyri.is þar sem sjá má fleiri myndir frá tónleikunum.

 


Hátíð á Iðavelli

Skrifað 30. mars 2007 klukkan 05:32 | | Leikskólar |

Í dag er nýja húsið á leikskólanum Iðavelli 6 ára og börn og starfsmenn héldu upp á afmælið með því að syngja saman, sjá heimagert leikrit og svo kom slökkviðliðið óvænt í heimsókn þegar einn pabbinn kíkti við. Þá vildu allir skoða bílinn og krakkarnir þyrptust út og fengu að fara inn í bílinn. Starfsmönnum taldist til að slökkviliðsmennirnir hefðu hvor um sig lyft um einu tonni þegar þeir hjálpuðu börnum inn og út úr bílnum. Í hádeginu var á boðstólum uppáhaldsmatur barnanna, kjúklingur með kartöflubátum og svo var kaka í kaffinu. Í dag var sem sagt sannkölluð hátíð á Iðavelli og allir skemmtu sér vel, að sögn starfsfólksins, sem sendi okkur meðfylgjandi myndir.


Stækkun Álfasteins gengur vel

Skrifað 18. janúar 2007 klukkan 09:46 | | Leikskólar |

Lokaspetturinn við stækkun leikskólans Álfasteins er nú hafinn, að því er fram kemur á vef Hörgárbyggðar. Rafvirkjar hafa verið önnum kafnir í viðbyggingunni síðustu daga og smiðir staðið í ströngu við að setja upp kerfisloft. Afhending á föstum innréttingum er áætluð í þessari viku en áætlað er að byggingin verði tilbúin til notkunar um miðjan febrúar. Þá hefjast breytingar á eldra húsnæði leikskólans til að húsnæðið myndi eina heild, segir ennfremur á vefnum, þaðan sem myndin af framkvæmdunum er fengin.


Börnin á Holtakoti heimsækja Sel

Skrifað 22. desember 2006 klukkan 10:21 | | Leikskólar |

Miðvikudaginn 20. desember heimsóttu tveir elstu árgangar leikskólans Holtakots gamla fólkið á Seli og sungu jólalög fyrir það við undirspil Gunnu Torfa. Þetta var mjög notaleg stund og börnin fengu mikið lof fyrir kurteisi og dugnað, segir á heimasíðu Holtakots, þar sem skoða má fleiri myndir frá heimsókninni og öðru starfi á leikskólanum.

http://holtakot.akureyri.is
 


Búkolla á Tröllaborgum

Skrifað 11. desember 2006 klukkan 06:19 | | Leikskólar |

Í síðustu viku var margt um að vera á Völlum á leikskólanum Tröllaborgum, eins og á flestum leikskóladeildum bæjarins. Rebekka Unnur, 4 ára í Hvammi, spilaði á fiðlu fyrir börnin á deildinni  og svo bauð foreldrafélag Tröllaborga upp á leiksýninguna „Búkollu“ í flutningi leikfélags MA. Nánar á www.trollaborgir.akureyri.is

 


Pappírsgerð í Smábæ

Skrifað 30. nóvember 2006 klukkan 08:43 | | Leikskólar |

Nýlega tóku börnin á leikskólanum Smábæ í Hrísey sig til og bjuggu til pappír í stórum stíl ásamt foreldrum sínum og kennurum. Árangurinn varð sá að allar snúrur urðu fullar af pappír. Dagurinn varð hinn skemmtilegasti og sulluðu börnin og þau fullorðnu eins og þau mögulega gátu, að því er fram kemur á heimasíðu Smábæjar, http://smabaer.akureyri.is/

Þá fór fyrir skömmu fram kökusala þar sem selt var bakkelsi sem foreldrar og starfsfólk leikskólans höfðu bakað. Rann ágóðinn til ýmiss konar menningarstarfsemi og skemmtana fyrir börnin. Einnig voru seld kort sem starfsfólk og börn höfðu búið til.

Á heimasíðu Smábæjar má sjá fleiri myndir frá pappírsgerðinni og ýmsum öðrum viðburðum í leikskólanum.

 



Leikskólar