Háskólinn

Félagsvísindatorg: Afmörkun landgrunns

Skrifað 16. janúar 2012 klukkan 14:28 | | Fréttir, Háskólinn |

Á félagsvísindatorgi miðvikudaginn 18. janúar mun Bjarni Már Magnússon halda erindi undir yfirskriftinni: Samningar um afmörkun landgrunnsins utan 200 sjómílna. Torgið fer fram í stofu M101 á Sólborg og hefst kl. 12.00. Erindið fer fram á ensku. Nánar »


Háskólinn á Akureyri boðar til blaðamannafundar

Skrifað 10. janúar 2012 klukkan 12:43 | | Fréttir, Háskólinn |

Föstudaginn 13. janúar kl. 12:30 boðar Háskólinn á Akureyri til blaðamannafundar og tilefnið er kynning á 25 ára afmæli háskólans, en nú er afmælisárið runnið upp. Afmælisdagur háskólans er 5. september og ákveðið hefur verið að halda upp á afmælið með hinum ýmsu viðburðum allt árið 2012. Kynningin fer fram í hátíðarsal háskólans á Sólborg.


MÁLSTOFA Í VIÐSKIPTAFRÆÐI

Skrifað 07. desember 2011 klukkan 17:00 | | Fréttir, Háskólinn |

Fimmtudaginn 8. desember verður málstofa í M10 nýbyggngu Háskólans á Akureyri stofu M 101 kl. kl. 12.10 – 12.55.

Gestur Hovgaard mun ræða stöðu Færeyja sem smáríkis – efnahagslegar áskoranir og veikleika. Gestur Hovgaard er lektor við Sögu og samfélagsdeild Fróðskaparseturs Færeyja.  Hann lauk doktorsprófi í félagsfræði frá Háskólanum í Roskilde í Danmörku og starfaði þar sem kennari um skeið. Helstu rannsóknasvið Gests hafa verið nýsköpun og svæðaþróun. Um árabil var hann framkvæmdastjóri Rannsóknaseturs byggðamála í Færeyjum. Þá hefur hann verið stjórnarformaður fyrirtækisins Atlantic Biotechnology.

 


Háskólinn á Akureyri. Málstofa: Sjávarlíftækni og stjórn fiskveiða

Skrifað 25. október 2011 klukkan 17:25 | | Fréttir, Háskólinn |

Á málstofu auðlindadeildar fimmtudaginn 27. október í stofu M202 kl. 12:10 mun Magnús Örn Stefánsson flytja erindið Sjávarlíftækni og stjórn fiskveiða. Í fyrirlestrinum ætlar Magnús að sýna hvernig aðferðir sjávarlíftækninnar geti nýst við stjórn fiskveiða. Til að útskýra aðferðir sínar tekur Magnús dæmi um djúpkarfann í Irmingerhafi (Grænlandshafi).
Nánar »


Að vefa serk þann er ekki bíta járn

Skrifað 08. apríl 2011 klukkan 10:30 | | Háskólinn |

Solborg_2Laugardaginn 9. apríl 2011 verður haldin á Akureyri árleg vorráðstefna miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Að þessu sinni verður umfjöllunarefnið framsækni í kennslu og leiðir að árangursríku námi með virkri þátttöku nemenda. Leitast verður við að varpa ljósi á hvaða skilyrði í skóla stuðla að slíku skólastarfi og er efni ráðstefnunnar sniðið að leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum. Nánar »


Jafnréttistorg – Jón Sigurðsson forseti: Fjallkarl Íslands?

Skrifað 05. apríl 2011 klukkan 11:03 | | Fréttir, Háskólinn |

PallBjornssonÁ morgun miðvikudaginn 6. apríl kl. 12:00 fer fram jafnréttistorg í stofu N102, Sólborg. Páll Björnsson dósent við HA flytur erindið Jón Sigurðsson forseti: Fjallkarl Íslands?
Með þjóðernisvakningu 19. aldar varð fjallkonan að mikilvægu tákni fyrir íslenska þjóðfrelsishreyfingu. Hér á landi eins og annars staðar skiptu karllæg tákn hins vegar töluvert meira máli en þau kvenlegu, m.a. vegna þess að flestar þjóðhetjur eru karlkyns. Sem slíkar báru þær frelsi og framfarir í skauti sér á meðan fjallkonurnar, hérlendis sem erlendis, urðu að merkisberum óbreytanleikans, að ímynd fortíðarinnar, að mæðrum sem gátu af sér hetjurnar og nærðu þær. Nánar »


Lee Buchheit flytur erindið: Icesave-samningarnir – kostir og gallar í Háskólanum á Akureyri.

Skrifað 30. mars 2011 klukkan 19:28 | | Fréttir, Háskólinn |

LeeBuchheitÁ morgun fimmtudaginn 31. mars klukkan 12.30-13.30 verður fjallað um Icesave samningana í Háskólanum á Akureyri, stofu M102. Lee  Buchheit mun  flytja erindið: Icesave-samningarnir – kostir og gallar. Nánar »


Byggðastefna ESB og Íslands

Skrifað 21. mars 2011 klukkan 12:40 | | Fréttir, Háskólinn |

ESB faniViðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri býður til opinnar málstofu þriðjudaginn22. mars 2011 kl. 16:30 – 17:30 í sal M101 í Miðborg. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor mun flytja erindið Byggðastefna ESB og Íslands. Er eftir einhverju að slægjast?

Nánar »


Stúdentar við HA fagna hækkun grunnframfærslu LÍN

Skrifað 24. september 2009 klukkan 12:07 | | Fréttir, Háskólinn, Skólar |

Háskólinn á AkureyriFélag stúdenta við Háskólann á Akureyri hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að verða að tillögu félags- og tryggingarmálaráðherra og menntamálaráðherra um hækkun grunnframfærslu LÍN.

Í ályktuninni segir; “FSHA telur að með aðgerðinni sé verið að koma til móts við þann hóp stúdenta sem stendur einna verst í efnahagsþrengingunum. Með hækkun grunnframfærlsu LÍN um 20% er verið koma til móts við tekjaminnsta hóp námsmanna. Með aðgerðinni er stigið gríðarlega mikilvægt skref í að bæta stöðu námsmanna. Þó svo að hér sé um mikið framfaraskref þá telur FSHA óhóflega hækkun skerðingarhlutfalls áhyggjuefni gagnvart skuldugum námsmönnum sem eiga ekki annarra kosta völ en að vinna með námi. Sá hópur námsmanna gæti orðið fyrir talsverðri tekjuskerðingu vegna hækkunar skerðingarhlutfalls úr 10% í 35%.”

Nánar »


Eining-Iðja færir Háskólanum á Akureyri vegleg ritsöfn að gjöf

Skrifað 23. september 2009 klukkan 00:40 | | Fréttir, Háskólinn, Skólar |

Háskólinn á AkureyriÞorsteinn E. Arnórsson, þjónustufulltrúi hjá Einingu-Iðju, færði bókasafni Háskólans á Akureyri veglega bókagjöf á dögunum. Um var að ræða tvö ritsöfn sem félagið eignaðist fyrir nokkrum árum, en ákveðið var að færa háskólanum ritsöfnin til að þau nýtist sem flestum.

Annað ritsafnið heitir Verdenshistorien og er í 16 bindum útgefnum á árunum 1965 til 1968. Hitt ritsafnið heitir Salmonsens Konversations Leksion og er í 26 bindum útgefnum á árunum 1915 til 1930. Það var Astrid M. Magnúsdóttir, forstöðumaður upplýsingasviðs háskólans, sem veitti bókunum viðtöku fyrir hönd skólans.


Enn unnið að framkvæmdum við bílastæði HA

Skrifað 24. ágúst 2009 klukkan 22:39 | | Fréttir, Háskólinn, Skólar |

Bílastæði Háskólans á AkureyriUnnið hefur verið að framkvæmdum við bílastæði Háskólans á Akureyri að Sólborg í sumar. Samkvæmt áætlun átti að ljúka framkvæmdum fyrir upphaf skólaársins en vegna erfiðs jarðvegs á svæðinu náðist það ekki.
Verkið reyndist umfangsmeira en gert var ráð fyrir í fyrstu þar sem jarðvegur var erfiðari en búist var við.

Sökum þessa skapast ákveðin vandræði hvað bílastæði varðar og hefur starfsfólk háskólans ekki farið varhluta af því í sumar. Þeim óskum er því beint til bæði starfsfólks og nemenda sem fara að streyma í háskólann á næstu dögum að nýta sér aðra fararkosti en einkabíla sem framast er unnt. Á meðan veður haldast góð er hægt að hjóla eða ganga og þá er vert að minna á að frítt er í strætó á Akureyri.

Forsvarsmenn HA biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að skapast af þessu ástandi en reiknað er með því að hluti af nýju bílaplani verði tekin í notkun í lok ágúst en framkvæmdunum við planið líkur ekki fyrr en síðar í haust.


Málstofa í Viðskiptafræði

Skrifað 17. apríl 2009 klukkan 01:54 | | Háskólinn, Skólar, Viðburðir |

halogo_office_top_pos_rgb

Föstudaginn 17. apríl flytur James A. H. S. Hine, dósent í Organisational Studies and Business Ethics við Háskólann í Edinborg, erindi undir yfirskriftinni: Can we blame the victims?: Reflecting on Causality and Responsibility for the Banking Crisis. Fyrirlesturinn verður í stofu R311 á Borgum við Norðurslóð frá kl. 12.10 – 12.55.


Meðganga í hjartanu

Skrifað 17. mars 2009 klukkan 10:56 | | Háskólinn |

Fyrirlestur miðvikudaginn 18. mars 2009
Kl. 12.00  í stofu L 201 á Sólborg

Meðganga í hjartanu:
Íslenskir kjörforeldrar barna af erlendum uppruna
Rannsóknir á ættleiðingum barna frá öðrum menningarsvæðum hafa einkum beinst að hinum ættleiddu, aðlögun þeirra og þroskaferli, sjálfsmynd þeirra og vandamálum sem kunna að koma upp. Hlutverk og sjálfsmynd kjörforeldra hefur lítt verið rannsakað, þeir eru oftast aukapersónur í umræðunni. Fyrirlestur Sólveigar H. Georgsdóttur á Félagsvísindatorgi byggir á meistaraprófsritgerð hennar í mannfræði, Meðganga í hjartanu: Íslenskir kjörforeldrar barna af erlendum uppruna. Sjónum er beint að kjörforeldrum sem virkum gerendum í flóknu og oft þversagnakenndu ferli. Leitast er við að svara spurningum á borð við: Hvaða augum líta kjörforeldrar á uppruna barna sinna? Hvaða verkfæri nota þeir til að skapa veruleika í tilveru sína? Hvernig birtast hugmyndir um rætur og menningu í athöfnum þeirra?
(Fyrirlesturinn fer fram á ensku).

Sólveig H. Georgsdóttir lauk meistaragráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 2007. Hún starfar sem sérfræðingur hjá MIRRA – Miðstöð InnflytjendaRannsókna ReykjavíkurAkademíunni og er stundakennari við Háskólann á Akureyri


Blogg og önnur boðskipti unglinga á netinu

Skrifað 03. mars 2009 klukkan 04:11 | | Háskólinn |

Félagsvísindatorg HA.

Fyrirlestur miðvikudaginn 4. mars 2009
Kl. 12:00 L 201 Sólborg

Blogg og önnur boðskipti unglinga á netinu.

Undanfarin misseri hefur mikið verið rætt um boðskipti unglinga á netinu. Sumarið 2008 vann Sóley Björk Stefánsdóttir verkefni með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna sem snérist um að kanna boðskipti unglinga í 7.-9. bekk á netinu með áherslu á blogg. Bloggin voru kortlögð og leitað svara við því hvar unglingarnir eru að blogga,  hvort þeir eru að því einir eða í hópum og síðast en ekki síst var athyglinni beint að innihaldi bloggsins, þ.e. því sem bloggað er um hverju sinni og hvers eðlis boðskiptin eru sem finna sér þennan farveg. Niðurstöður voru kynntar í Þjóðarspegli Háskóla Íslands í Október 2008 og birtar í ritinu Rannsóknir í félagsvísindum IX.
Sóley Björk Stefánsdóttir er nemi í fjölmiðlafræði við Hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Hún lýkur BA námi í vor 2009. Sóley Björk lauk stúdentsprófi frá Borgarholtsskóla 2002 með áherslu á margmiðlunarhönnun.

 


Gott félagslíf, góður skóli?

Skrifað 24. febrúar 2009 klukkan 10:33 | | Háskólinn |

Fyrirlestur miðvikudaginn 25. febrúar 2009
Kl. 12.00  í stofu L 201 á Sólborg

Gott félagslíf framhaldsskóla styrkir félagstengsl og stuðningsnet nemenda, þar sem útkoman verður lítið brottfall nemenda, hærri meðaleinkunn, færri félagslega vandamál og jákvæð ímynd skólans út á við. Tækniskóli atvinnulífsins varð til úr sameiningu Iðnskólans í Reykjavík, Fjöltækniskólans, Flugskóla Ísland og fleiri skólum og úr varð stærsti fjölbrautaskóli landsins með 1900 nemendur og meðalaldurinn er 22 ár.  Verkefnin við skipulagningu félagslífsins voru æði mörg.  Jónsi, félagsmálafrömuður skólans, skýrir í stuttu máli frá því hvaða leiðir voru farnar til að tryggja að félagslífið og skólalíf færi saman með skipulögðum en skemmtilegum hætti.

Jónsi, Jón Jósep Snæbjörnsson, er burtfluttur Akureyringur, tónlistarmaður, skemmtikraftur, sjónvarpsmaður og margreyndur á félagsmálasviðinu. Hann starfar sem félagsmálafrömuður Tækniskólans.  Hann er giftur tveggja barna faðir og býr í Hafnarfirði.

 



Háskólinn