Grunnskólar

Danska í Danmörku – fermingargjöf til framtíðar

Skrifað 09. febrúar 2006 klukkan 11:39 | | Grunnskólar |

Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Skóladeild
Akureyrarbæjar og Europahøjskolen á Kalø á Jótlandi, mun standa fyrir tveggja vikna námskeiði í dönsku fyrir nemendur í 7. 8. 9. og 10. bekk grunnskóla. Námskeiðið verður haldið á Europahøjskolen á Kalø á Jótlandi dagana 6.- 20. júní nk. Kennt verður fyrir hádegi 11 morgna, 4 kennslustundir daglega. Eftir hádegi verður skipulagður frítími. Farið verður í skógarferðir, siglt á kanó og margt fleira spennandi gert. Einnig verður farið í tvær ferðir á vegum skólans um nágrennið. Flogið verður í beinu flugi frá Akureyri til Kaupmannahafnar.

Áhugasamir hafi samband við Maríu í síma 462 7000 á opnunartíma skrifstofu, sem er kl. 09:00-14:00 mánud. – fimmtud eða með tölvupósti til mariajons@akureyri.is


Breytingar á gjaldskrá skólamötuneyta

Skrifað 16. desember 2005 klukkan 09:20 | | Grunnskólar |

Á fundi skólanefndar 12. desember sl. var ákveðið að taka upp magnafslætti við sölu á máltíðum í mötuneytum grunnskólanna. Frá og með 1. janúar nk. mun gjaldskráin verða sem hér segir:

Ef keyptar eru stakar máltíðir, lágmark 10 í mánuði, er verðið óbreytt, 280 kr.
Ef keyptar eru máltíðir alla virka skóladaga mánaðarins lækkar verðið í 250 kr.
Ef nemandi er skráður í allar máltíðir út önnina lækkar verðið í 210 kr. á máltíð. Þeir foreldrar sem vilja fara þessa leið þurfa að hafa samband við ritara viðkomandi skóla hið allra fyrsta.

Skráningu í mötuneyti fyrir janúarmánuð lýkur á sunnudag.


Glæsileg styrktarsamkoma í Oddeyrarskóla

Skrifað 13. desember 2005 klukkan 12:28 | | Grunnskólar |

Fimmtudaginn 8. desember s.l. buðu 1. og 6. bekkur í Oddeyrarskóla á Akureyri til samkomu þar sem boðið var upp á jólalög, helgileik og glæsilegan flutning á laginu Hjálpum þeim.  Aðstandendur og velunnarar fjölmenntu og rann aðgangseyrir óskiptur til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna hamfaranna í Pakistan. Það var sr. Óskar H. Óskarsson sóknarprestur við Akureyrarkirkju sem veitti peningunum viðtöku fyrir hönd Hjálparstarfs kirkjunnar. Alls söfnuðust kr. 40.481 og er framtak barnanna sannarlega glæsilegt og lofsvert.


Skákmót fyrir grunnskólanema

Skrifað 08. nóvember 2005 klukkan 08:41 | | Grunnskólar |

Á vegum Kiwanisklúbbsins Kaldbaks og Skákfélags Akureyrar verður haldið skákmót fyrir alla grunnskólanemendur á Akureyri í Lundarskóla laugardaginn 12 nóvember kl. 11.00. Veitingar í boði og verðlaun afhent.

 


Þemadagar í Brekkuskóla

Skrifað 02. nóvember 2005 klukkan 12:19 | | Grunnskólar |

Dagana 1.-3. nóvember eru þemadagar í Brekkuskóla og nemendur starfa í aldursblönduðum hópum að hinum ýmsu verkefnum sem tengjast Danmörku og H.C. Andersen. Þess má geta að á þessu ári eru einmitt liðin 200 ár frá fæðingu hans. Unnið er að afar fjölbreyttum verkefnum, sett á svið leikrit, unnið með spuna, farið í ratleiki, búnar til hallir, gerðar bækur og margt margt fleira. Frá þessu er sagt á heimasíðu Brekkuskóla, þaðan sem myndin er fengin, en á síðunni má nálgast fleiri myndir og meiri upplýsingar um þemadagana.


Lundarskóli fær viðurkenningu frá Vinnueftirlitinu

Skrifað 28. október 2005 klukkan 11:43 | | Grunnskólar |

Í vikunni veitti Vinnueftirlitið fimm fyrirtækjum og stofnunum viðurkenningar fyrir gott starf og góðar lausnir sem miðuðu að því að draga úr hávaða og bæta hljóðvist. Viðurkenningarnar eru veittar í tilefni evrópsku vinnuverndarvikunnar og markmiðið með þeim að vekja athygli á því hvernig fyrirtæki geta beitt sér til þess að skapa starfsfólki sínu þægilegra vinnuumhverfi og betri hljóðvist. Þessi fyrirtæki hafa gert sér ljóst að hávaðavarnir skila sér í ánægðara starfsfólki sem aftur skilar sér í betri starfsanda, heilsu og framlegð, segir í frétt frá Vinnueftirlitinu.

Lundarskóli var meðal þeirra sem viðurkenningu hlutu. Skólinn hefur unnið að því að bæta hljóðvist í kennslustofum með því að setja upp hljóðkerfi, en röddin er vinnutæki kennarans og er undir miklu álagi við hefðbundnar aðstæður við kennslu. Þessar úrbætur hafa skilað sér í minnkuðu álagi á raddfærin og auknum skilningi nemenda á því sem sagt er. Að auki herma nemendur að kennarar virðist ekki vera eins reiðir og áður þegar þeir þurftu meira að byrsta sig. Hljóðkerfin hafa líka skilað hljóðlátari kennslustofum og því bættu vinnuumhverfi fyrir kennara og nemendur.

Akureyri.net óskar Lundarskóla til hamingju með viðurkenninguna.

 


Foreldrafélög efna til fræðslufundar um hreyfingu, næringu og geðrækt

Skrifað 25. október 2005 klukkan 12:21 | | Grunnskólar |

Foreldrafélög grunnskólanna á Akureyri í samvinnu við Heilsueflingarráð boða til fræðslufundar miðvikudaginn  26. október nk. klukkan 20:00 í Brekkuskóla. Þar mun Hólmfríður Þorgeirsdóttir tala um næringu, en holl og fjölbreytt fæða er mikilvæg fyrir börn og unglinga sem eru að vaxa og þroskast. Guðrún Guðmundsdóttir talar um geðrækt og mikilvægi geðheilsu og að lokum mun Gígja Gunnarsdóttir tala um reglulega hreyfingu sem er nauðsynleg til að viðhalda heilbrigðri sál í hraustum líkama. Að loknu erindinu gefst tækifæri til fyrirspurna.
 
Foreldrafélögin hvetja alla foreldra og forráðamenn grunnskólabarna, svo og aðra þá er áhuga hafa á málefninu, til að koma á fundinn.


Oddeyrarskóli : Góð heimsókn frá fjarlægum slóðum

Skrifað 29. september 2005 klukkan 03:49 | | Grunnskólar |

Margir nemendur Oddeyrarskóla taka þátt í barna – og unglingastarfi Hjálpræðishersins. Síðastliðinn föstudag fengu nemendurnir fjölþjóðlega heimsókn ungs fólks frá Perú, Noregi og Íslandi á vegum Hjálpræðishersins. Gestirnir hittu nemendur unglingastigs og kynntu ólíka starfsemi sína í Noregi og Perú, auk þess sem þeir sögðu frá uppruna Hjálpræðishersins. Rætt var um heimsmálin og þörf fyrir hjálparstarf af því tagi sem samtök á borð við Hjálpræðisherinn sinna. Einnig var söngur og dans í hávegum hafður og áttu nemendur skemmtilega og fróðlega stund saman.

Myndir frá heimsókninni má skoða á vefsíðu Oddeyrarskóla, www.oddak.akureyri.is


Nemendur í 10. bekk fá forvarnafræðslu í fjármálum

Skrifað 13. september 2005 klukkan 05:34 | | Grunnskólar |

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna og Akureyrarkaupstaður hafa gert samkomulag um að vinna saman að forvörnum í fjármálum fyrir 10. bekkinga í grunnskólum Akureyrar. Frá þessu er greint á heimasíðu bæjarins í dag.

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur allt frá árinu 2003 gengið til þjónustusamninga við Akureyrarkaupstað og hafa ráðgjafar frá stofunni farið að meðaltali tvisvar í mánuði á fyrirfram ákveðnum dögum og veitt viðtöl í fjölskyldudeild Akureyrarbæjar. Hefur samstarf þetta verið mjög ánægjulegt og aukið þjónustu við íbúa sveitarfélagsins sem eiga í greiðsluerfiðleikum.

Ákveðið var á grundvelli samningisins að gera tilraun með forvarnir fyrir unga fólkið á Akureyri og var ákveðið að skipuleggja kennslu um fjármál fjölskyldunnar í öllum 10. bekkjum á Akureyri. Fjármál fjölskyldunnar er eitt stærsta verkefni sem unga fólkið á eftir að takast á við í lífinu og er mikilvægt að hefja fræðsluna sem fyrst. Undirbúningurinn hefur verið í samráði við skóladeild Akureyrarbæjar. Fyrsta kennslustundin verður á morgun miðvikudag 14. september kl. 10.00 í Oddeyrarskóla fyrir 10. bekk í skólanum ásamt nemendum frá Hrísey. Það er Björg Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur, sem verður með fyrstu kennslustundina.

Kennslan í öðrum skólum í bænum verður eftirfarandi og hefst alltaf kl. 9.45:

28. sept.: Glerárskóli og nemendur frá Hlíðarskóla
12. okt.: Lundarskóli
26. okt.: Brekkuskóli
9. nóv.: Giljaskóli
23. nóv.: Síðuskóli

Það sem farið verður yfir með nemendum er m.a. fjárhagsáætlanir, sparnaður, hugtök varðandi fjármál, lán, ábyrgðarmennska, greiðsluerfiðleikar, vanskil og nemendum gefin ýmis góð ráð vegna fjármála.



Grunnskólar