Skólahreysti er hreystikeppni fyrir 9. og 10 bekkinga allra grunnskóla landsins og byggist upp á fimm keppnisgreinum: Upphífingum (strákar), armbeygjum (stelpur), dýfum (strákar), fitnessgreip (stelpur) og hraðaþraut (stelpur/strákar). Hraðaþraut er byggð upp á mörgum mismunandi þrautum. Byrja þarf inni í lokuðum bíl, hlaupa í 12 dekkjum, fara á höndum 5 m langan stiga, klifra yfir 5 m háan netvegg, skríða undir 5 m langt net, hlaupa með 10-20 kg sekki, lyfta 25-35 kg hnöttóttum kúlum, sippa 10 sinnum og klifra upp í 4–6 m kaðal og enda inni í bíl.
Alls verða haldnar 10 forkeppnir í Skólahreysti. 6 keppnir eru búnar. Skjár einn tekur upp allar keppnirnar og sýnir þær kl. 20:00 á þriðjudagskvöldum. Stigahæsti skólinn úr hverjum riðli kemst í
úrslitakeppnina sem haldin verður í Laugardalshöll 26. apríl og sýnd í beinni útsendingu á Skjá einum. Það er til mikils að vinna því að sá skóli sem hreppir fyrsta sæti í úrslitum fær 200 þúsund í verðlaunafé sem rennur til nemendafélags, annað sæti fær 100 þúsund og þriðja sæti fær 50 þúsund.
Byrjað var á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Selfoss og Egilsstaðir eru að baki, nú er það Akureyri, síðan Ísafjörður og loks Borgarnes.
Þeir skólar sem komnir eru í úrslit úr fyrstu sex riðlunum eru:
Breiðholtsskóli, Hagaskóli, Lindaskóli, Áslandsskóli, Flúðaskóli og
Heppuskóli í Höfn í Hornafirði.
Þeir skólar sem keppa á Akureyri:
Fyrri riðill kl. 16.00: Borgarhólsskóli, Dalvíkurskóli, Grunnskóli Siglufjarðar, Grunnskóli Skútustaðahrepps, Grunnskólinn á Hofsósi, Grunnskólinn á Ólafsfirði, Höfðaskóli og Þelamerkurskóli. Seinni riðill hefst kl. 18.00 og í honum eru: Brekkuskóli, Giljaskóli, Glerárskóli, Hrafnagilsskóli, Oddeyrarskóli, Síðuskóli, Valsárskóli og Varmahlíðarskóli.
Ívar Guðmundsson útvarps og fitnesskappi verður kynnir. Gunnlaugur Helgason útvarpsmaður tekur viðtöl við keppendur og íþróttakennara. Sterku bræðurnir Andrés og Pétur Guðmundssynir verða dómarar. Enginn aðgangseyrir er og allir velkomnir.