Grunnskólar

Vel mannaðir grunnskólar á Akureyri

Skrifað 27. ágúst 2009 klukkan 18:10 | Ingimar Björn | Fréttir, Grunnskólar |
Naustaskóli á Akureyri. Mynd/Hörður Geirsson.

Vel hefur gengið að manna grunnskólana á Akureyri fyrir veturinn. Í fréttablaðinu Skóla akur sem kom út í dag segir að ekki hafi verið óalgengt að sex umsóknir bærust um hverja stöðu, og er hlutfall fagmenntaðra starfsmanna nálægt 100 prósentum.

Nú á mánudaginn hófu 2.586 nemendur skólastarf í grunnskólum bæjarins. Þar af eru 264 nemendur í fyrsta bekk að stíga sín fyrstu skref á skólabekk.

Ekki hefur þurft að fækka starfsmönnum í skólum bæjarins, þrátt fyrir efnahagsástandið. Stöðugildafjöldi starfsmanna helst óbreyttur, en um 400 starfsmenn í 378 stöðugildum starfa í grunnskólunum. Þó hefur þurft að grípa til margvíslegra aðgerða til að lækka rekstrarkostnað skólanna. Þrengra er um aðföng en áður og einnig hefur þurft að hætta ýmsum hliðarverkefnum. Sem dæmi má nefna að frístundir skólanna munu loka klukkan 16.15 í vetur, en ekki 17.15 eins og áður var.

Mynd:
Naustaskóli á Akureyri (Hörður Geirsson)


Göngum í skólann

Skrifað 12. september 2008 klukkan 01:33 | Helgi Már | Grunnskólar |

„Göngum í skólann“- verkefnið 2008 hófst miðvikudaginn 10. september og lýkur formlega á alþjóðlega „Göngum í skólann“- deginum miðvikudaginn 8. október. Í ár verður lögð áhersla á að börn gangi eða hjóli til og frá skóla. Markmið verkefnisins eru meðal annars:

Hvatning til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann, fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar og draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.

Vitundarvakning um hversu „gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.

Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál.

Verkefnið er alþjóðlegt og á síðasta ári tóku milljónir barna frá fjörutíu og tveimur löndum víðs vegar um heiminn þátt í „Göngum í skólann“- með einum eða öðrum hætti.


Sjöttubekkingar í sjóferð

Skrifað 05. september 2008 klukkan 09:31 | Helgi Már | Grunnskólar |

Nemendur í 6.bekk grunnskólanna á Akureyri fara nú á haustdögum í vettvangsferð á sjó á bátnum Húna II. Siglt er meðfram ströndinni að Krossanesi og farið verður yfir ýmislegt tengt hafinu og sjávarlíffræði. Það eru Hollvinir Húna II. sem standa að ferðunum í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Skóladeild Akureyrarbæjar með stuðningi frá Saga Capital.

Í ár munu nemendur fá fræðsluefni afhent sem miðlar fróðleik um hollustuna úr hafinu og þann fjölbreytileika sem matarkistan hafið býður uppá. Fiskispjald verður einnig afhent til að hengja upp í skólastofu þar sem það minnir á hollustuna úr hafinu og það sem þau upplifðu í ferðinni. Sjá nánar á heimasíðu Skóladeildar Akureyrar, www.skoladeild.akureyri.is .


Búnaður fyrir fatlaða í kennslueldhúsi Lundarskóla

Skrifað 05. júní 2008 klukkan 09:49 | Helgi Már | Grunnskólar |

Föstudaginn 16. maí var formlega tekinn í notkun í kennslueldhúsi Lundarskóla búnaður fyrir fatlaða nemendur. Um er að ræða vinnuborð með breytanlegri hæðarstillingu og bökunarofni með hliðarhengslum á hurð og brautum fyrir bökunarplötur. Í vinnuborðinu er vaskur og spansuðuhella. Spansuðuhellur hitna mjög lítið og eru því ákjósanlegar í kennslueldhús. Þessi búnaður nýtist ekki bara fötluðum heldur hentar hann öllum vel, sérstaklega yngri nemendum. Anna María Malmquist iðjuþjálfi hannaði breytingarnar. Í tilefni af þessum áfanga var haldið boð sem Sigrún María Óskarsdóttir nemandi í skólanum og Sigríður Jakobsdóttir heimilisfræðikennari undirbjuggu. Sýndi Sigrún María hvernig aðstaðan nýtist henni og svo var sest að veisluborði.

www.lundarskoli.akureyri.is


Íslandsmeistari í skólaskák

Skrifað 07. maí 2008 klukkan 11:49 | Helgi Már | Grunnskólar |

Nemandi í Brekkuskóla, Mikael Jóhann Karlsson, varð Íslandsmeistari í skólaskák í yngri flokki (1.- 7. bekkjar) sem fór fram í Bolungarvík um helgina. Mikael hlaut 9,5 vinning af 11 mögulegum sem er frábær árangur. Frá þessu er greint á heimasíðu Brekkuskóla og þaðan er myndin fengin.

Akureyri.net óskar Mikael Jóhanni til hamingju.


Danska í Danmörku fyrir íslenska grunnskólanema

Skrifað 23. apríl 2008 klukkan 11:20 | Helgi Már | Grunnskólar |

Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Skóladeild Akureyrarbæjar og Europahøjskolen í Danmörku, hefur staðið fyrir vel lukkuðum tungumálanámskeiðum fyrir íslenska grunnskólanema undanfarin fjögur ár. 117 nemendur og 11 íslenskir kennarar hafa tekið þátt og hefur almenn ánægja verið með námsdvölina. 

Í ár eru 18 pláss í boði fyrir nemendur í 8. og 9. bekk grunnskóla. Kennsla fer fram í skólastofu í fjórar kennslustundir fyrir hádegi og eftir hádegi er kennt að mestu leyti utandyra í stórbrotnu umhverfi skólans þ.e. boðið er upp á eitt og annað spennandi fyrir unga fólkið.

Heimasíður námsskeiðanna 2006 og 2007 eru aðgengilegar á heimasíðu Norrænu upplýsingaskrifstofunnar www.akmennt.is/nu

Verkefnið hefur hlotið styrk frá Nordplus Sprog og Kultur en án hans væri það vart framkvæmanlegt.

Skráning er hafin á næsta námskeið sem haldið verður 9.-22. júní og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband sem fyrst með tölvupósti til mariajons@akureyri.is eða í síma 462 7000.


Stóra upplestrarkeppnin á þriðjudag

Skrifað 06. apríl 2008 klukkan 11:49 | Helgi Már | Grunnskólar |

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk er haldin í ellefta sinn á þessu skólaári. Að vanda hófst verkefnið með samstilltu átaki í öllum þátttökubekkjum á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Frá þeim degi og fram í mars lögðu kennarar sérstaka rækt við vandaðan upplestur og framsögn í bekkjum sínum, leiðbeindu nemendum og gáfu þeim færi á að lesa upp við ýmis tækifæri, bæði innan skóla og utan.

Lokahátíð upplestrarkeppninnar er þriðjudaginn 8. apríl n.k. kl. 17–19  í Menntaskólanum á Akureyri, en þar keppa til úrslita grunnskólar Akureyrar.

Meðfylgjandi er dagskrá keppninnar en námari upplýsingar má finna á http://www.ismennt.is/vefir/upplestur/


10. bekkingar heimsóttir tíunda árið í röð

Skrifað 30. janúar 2008 klukkan 03:15 | Helgi Már | Grunnskólar |

 Undanfarin ár hafa starfsmenn Einingar-Iðju heimsótt alla 10. bekkinga á Eyjafjarðarsvæðinu. Í þessum heimsóknum er dreift bæklingnum „Láttu ekki plata þig!“ og kynnt fyrir nemendum í hverju starf verkalýðsfélaga er fólgið og um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Það er Starfsgreinasambandið sem gefur bæklinginn út, en hann er sérstaklega ætlaður ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Með bæklingnum býður verkalýðshreyfingin allt ungt fólk velkomið í hóp félaga sinna og heitir því liðsinni sínu og væntir einnig þátttöku ungs fólks í félagslegu starfi hreyfingarinnar.

Þetta verkefni er nú í gangi tíunda árið í röð og segja forsvarsmenn Einingar-Iðju greinilegt að það sé að skila sér, því yngri félagsmenn virðast vita betur um réttindi sín og skyldur en áður og vita einnig hvert leita skal ef eitthvað bjátar á.

www.ein.is

 


Kraftaverk í Betlehemsstræti

Skrifað 06. desember 2007 klukkan 11:37 | Helgi Már | Grunnskólar |

Um helgina var söngleikurinn „Kraftaverk í Betlehemstræti“ frumsýndur og fékk hann afar góðar viðtökur. Það eru nemendur í 6.-10. bekk Brekkuskóla sem setja verkið á svið ásamt Guðjóni Davíð Karlssyni leikstjóra og Arnóri B. Vilbergssyni tónlistarstjóra. Verkið er tæpar 60 mínútur að lengd og um 27 leikarar taka þátt í verkinu ásamt þeim sem koma að undirbúningi, sviðsmynd o.fl. Söngleikinn þýddi fyrrverandi aðstoðarskólastjóra Brekkuskóla, Ágúst Jakobsson.

Söngleikurinn er með gamansömu ívafi og öllu því sem fyllir hug og hjörtu fólks á aðventunni. Fyrir leiksýningar rekur 10. bekkur kaffihús og býður til sölu kaffi og piparkökur/smákökur sem nemendur hafa bakað. Þetta er liður í fjáröflun fyrir skólaferðalag að vori. Næstu sýningar eru í kvöld og á morgun. Verð á almennar sýningar er kr 500.- fyrir alla. Á morgun fer leikarahópurinn einnig í Ketilhúsið og syngur á opnunarhátíð jólamarkaðsins klukkan 16.00.

Mynd og texti tekið af vef Akureyrarbæjar, www.akureyri.is .

Sjá dagskrá Aðventuævintýris á www.akureyri.is/adventuaevintyri


Opinn fundur skólanefndar Akureyrarbæjar

Skrifað 15. nóvember 2007 klukkan 10:53 | Helgi Már | Grunnskólar |

Skólanefnd boðar til opins fundar um málefni leikskóla og grunnskóla í Giljahverfi á Akureyri í sal Giljaskóla þriðjudaginn 20. nóvember kl. 20.00–22.00. Fjallað verður m.a.um stöðu skólanna í dag og líklega þróun næstu árin, áherslur skólanna, umhverfi þeirra – aðgengi, umferðarmál o.fl.

Á fundinum verða nokkur stutt innlegg en síðan gefst tækifæri til umræðu. Tilgangur fundarins er að heyra í foreldrum, starfsmönnum og öðrum bæjarbúum um málefni skólanna og safna þannig efni í sarpinn fyrir frekari stefnumótun um starfsemi þeirra.


Hríseyingar sigurvegarar í Raunveruleiknum

Skrifað 15. nóvember 2007 klukkan 07:50 | Helgi Már | Grunnskólar |

Nemendur Grunnskólans í Hrísey tóku í dag á móti fyrstu verðlaunum í Raunveruleiknum í útibúi Landsbankans á Akureyri. Leikurinn stóð í fjórar vikur í október og nóvember og fengu nemendur Grunnskólans í Hrísey flest stig að meðaltali.

Raunveruleikurinn er gagnvirkur hermileikur, hannaður sem fjármála- og neytendafræðsla í efsta bekk grunnskóla. Í leiknum fá nemendur innsýn í þær ákvarðanir sem venjulegur þjóðfélagsþegn þarf að taka á lífshlaupi sínu og hvaða tækifæri og hindranir verða á vegi hans í lífinu. Þátttakendur setja sig í ákveðin spor og móta lífshlaup sitt í sem raunverulegustu aðstæðum, óháð sinni raunverulegu stöðu.

Samstaða nemenda í Grunnskólanum í Hrísey var mikil og lögðu allir 9. og 10. bekkingar (sem eru 5 nemendur) sig fram við að gera sitt besta. Það er því sannkallað gleðiefni í ekki stærri skóla að nemendur vinni til fyrstu verðlauna, en alls tóku um 1300 nemendur í 10. bekk vítt og breitt af landinu þátt í leiknum.

www.akureyri.is


Opnir dagar í 1. bekk Lundarskóla

Skrifað 23. október 2007 klukkan 09:14 | Helgi Már | Grunnskólar |

Í síðustu viku voru opnir dagar í verk- og listgreinum hjá 1. bekk í Lundarskóla. Nemendur gátu valið sér svæði og unnið fjölbreytt verkefni. Verkefnin voru t.d að smíða tréfólk, þrykkja á efni, leira, teikna og mála. Hver nemandi fann sér verkefni við hæfi og fékk tækifæri til að fara á milli stofa og prófa fleiri en eitt verkefni, að því er fram kemur á vef Lundarskóla, þaðan sem myndin er fengin. Sjá www.lundarskoli.akureyri.is

 


Samsöngur í Brekkuskóla

Skrifað 06. október 2007 klukkan 11:11 | Helgi Már | Grunnskólar |

Nemendur Brekkuskóla syngja reglulega á sal skólans undir dyggri stjórn Arnórs tónmenntakennara. Það hefur reynst vel að brjóta upp skólastarfið reglulega og sveigja út af stundaskrá og ljóst að nemendum líkar það vel. Þemadagar, söngvakeppnin “Brekkuvision”, útivistardagar og árshátíðir eru einnig dæmi um slíkt en kennarar hafa einnig verið duglegir að drífa krakkana á listasöfnin í nágrenni skólans og fara í gönguferðir samhliða bóklegu námi, segir á vef Brekkuskóla, þaðan sem myndin er fengin.


Hafragrauturinn áfram í boði

Skrifað 22. ágúst 2007 klukkan 02:49 | Helgi Már | Grunnskólar |

Hafragrauturinn góði verður áfram í boði í Brekkuskóla í vetur samkvæmt ákvörðun aðalfundar foreldrafélags skólans síðastliðið vor. Skólayfirvöld hvetja alla nemendur og starfsfólk til að nýta sér þennan kjarngóða morgunverð í mötuneyti skólans alla skóladaga milli kl.07:45 og 07:55.


Kynning á starfi stéttarfélaga

Skrifað 02. maí 2007 klukkan 02:24 | Helgi Már | Grunnskólar |

Undanfarin ár hafa starfsmenn Einingar-Iðju heimsótt alla 10. bekkinga á Eyjafjarðarsvæðinu og haldið kynningu á starfi stéttarfélaga. Nýlega var Matthildur Sigurjónsdóttir, varaformaður félagsins, með slíka kynningu í grunnskólanum í Ólafsfirði. Þetta var þriðja kynningin sem haldin var í ár, áður var búið að fara í grunnskólann á Grenivík og í Þelamerkurskóla. Aðrir grunnskólar á svæðinu verða heimsóttir á næstunni, segir í frétt á heimasíðu Einingar-Iðju.

Í þessum heimsóknum er dreift bæklingi sem er sérstaklega ætlaður ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði, kynnt er fyrir nemendum í hverju starf stéttarfélaga er fólgið og um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Með bæklingnum býður verkalýðshreyfingin allt ungt fólk velkomið í hóp félaga sinna og heitir því liðsinni sínu og væntir einnig þátttöku ungs fólks í félagslegu starfi hreyfingarinnar.

Þetta verkefni er nú í gangi níunda árið í röð og að sögn Matthildar Sigurjónsdóttur, varaformanns félagsins, er greinilegt að þessar heimsóknir eru farnar að skila sér, því yngri félagsmenn virðast vita betur um réttindi sín og skyldur en áður og vita einnig hvert leita skal ef eitthvað bjátar á.

Matthildur sér að mestu um þessar kynningar, ásamt Þorsteini E. Arnórssyni, starfsmanni félagsins. Sjá www.ein.is en þaðan er myndin einnig fengin.



Grunnskólar